Innlent

Fleiri kjósa bálfarir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fleiri duftgrafir voru teknar í fyrra en árið á undan.
Fleiri duftgrafir voru teknar í fyrra en árið á undan. VÍSIR/ANTON BRINK
Alls voru 1.086 grafir teknar á nýliðnu ári hjá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma. Það er í Reykjavík, Kópavogi og Seltjarnarnesbæ. Kistugrafir voru 621 en duftgrafir 465 talsins.

Þetta þýðir að 57 prósent allra grafa á Íslandi voru kistugrafir og 43 prósent duftgrafir. Fjölgaði duftgröfum um tvö prósent frá fyrra ári. Á síðasta ári fóru 629 bálfarir fram í bálstofunni í Fossvogi og er það 30 prósent af heildartölu látinna á Íslandi það ár. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×