Skar sig en send heim með svefnlyf Snærós Sindradóttir skrifar 8. janúar 2016 07:00 Valdís Ósk Valsdóttir segist ekki vita hvers vegna dóttur hennar líði illa. Hún gæti hafa orðið fyrir áfalli sem Valdís viti ekki af en henni reynist erfitt að fá hana til að opna sig. vísir/ernir
Dóttir Valdísar Óskar Valsdóttur var send heim með svefnlyf af Barna og unglingageðdeild í gær þegar þær leituðu þangað vegna sjálfsskaðandi hegðunar hennar. Valdís sagði sögu tólf ára dóttur sinnar í Fréttablaðinu á þriðjudag en hún reyndi sjálfsvíg fyrir einu og hálfu ári. Í kjölfar viðtalsins hafði Barnavernd samband við Valdísi og sagði henni að hjólin væru farin að snúast í máli dóttur hennar. Það tæki tvær til sex vikur fyrir umsóknir þeirra að fara í gegnum kerfið. Dóttir hennar hefur ekki hitt geðlækni og ekki notið sálfræðihjálpar. „Svo kemst ég að því í morgun að hún var búin að skera sig. Ég fer með hana á barnaspítalann. Læknir þar beinir okkur áfram á BUGL. Þar er komist að þeirri niðurstöðu að það sé best að koma svefninum í lag þannig að ég er send heim með svefntöflur.“ Valdís segir að þegar hún hafi brugðist illa við hafi þeim verið bent á að sækja um neyðarvistun á Stuðlum. „En dóttir mín er ekki í vímuefnum. Hún er svo hvatvís að hún kæmi út helmingi fróðari um allt sem hún gæti gert.“ Hún segir að þegar hún hafi svo rætt við barnavernd í Reykjanesbæ hafi henni verið ráðlagt frá því að leita til Stuðla. Valdís segist ekki vita hvers vegna dóttur sinni líði svona illa. Hún þurfi sérfræðiaðstoð því hún sé mjög lokuð og erfitt reynist að ná til hennar. Valdís viti ekki hvort dóttir sín hafi orðið fyrir áfalli en gruni að þannig gæti verið í pottinn búið.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira