Innlent

Harður árekstur í Keflavík

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Annar ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðsstofnun Suðurnesja eftir áreksturinn.
Annar ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðsstofnun Suðurnesja eftir áreksturinn. Vísir/Pjetur
Einn var fluttur undir læknishendur eftir harðan árekstur sem varð á gatnamótum Hringbrautar og Faxabrautar í Keflavík í gærkvöld.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að áreksturinn hafi orðið með þeim hætti að bíl var ekið viðstöðulaust í veg fyrir annan á framangreindum gatnamótum.

Ökumaður fyrrnefndu bifreiðarinnar fann mikið  til í fótum og var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Bílarnir voru báðir óökufærir og voru fjarlægðir með dráttarbifreið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×