Jakob og félagar sátu fastir í marga tíma á flugvelli vegna sprengjuhótunnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2016 14:30 Jakob Örn Sigurðarson. Vísir/Valli
Jakob Örn Sigurðarson og félagar hans í sænska körfuboltaliðinu Borås Basket eiga útileik á móti BC Luleå í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld en það er óvíst hvort þeir komist norður til Luleå í tæka tíð fyrir leikinn. Lið Borås Basket lenti nefnilega í miðju ástandi á Gautaborgarflugvelli í morgun þegar allt flug í gegnum flugvöllinn stöðvaðist vegna sprengjuhótunnar. Staðarblaðið í Borås segir frá málinu á heimsíðu sinni en nú er búið að opna aftur flugvellinum í Gautaborg. Flugvél sem var að fara frá London til Stokkhólms þurfti að lenda í Gautaborg vegna sprengjuhótunnar og á meðan fór enginn flugvél frá Gautaborg. Borås Basket liðið átti að fljúga frá Gautaborg til Stokkhólms klukkan 9.35 í morgun en Jakob og strákarnir þurftu að dúsa á flugvellinum á meðan flugvallarstarfsmenn unnu í því að fullvissa sig um að engin sprengja væri í flugvélinni sem kom frá London. Nú er búið að opna flugvöllinn aftur. Borås Basket liðið komst loksins í loftið eftir margra tíma bið en um leið skapaðist mikil óvissa um að liðið næði hreinlega framhaldsfluginu til Luleå. Leikur Luleå og Borås Basket á að hefjast í kvöld klukkan 19.04 að sænskum tíma en samkvæmt upplýsingum frá blaðamanni Borås Tidning þá átti liðið að lenda á Arlanda milli 15.30 og 16.00. Borås Basket spilar mjög marga leiki á þessu tímabili enda á fullu í Evrópukeppninni líka og má félagið því ekki við frestunum. Menn þar á bæ ætla því að gera allt sitt til að ná leiknum í kvöld.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira