Hraðakstur við grunnskóla: 200 óku of hratt Birta Svavarsdóttir skrifar 25. ágúst 2016 17:40 Lögreglan minnir ökumenn á að aka hægar og sýna meiri tillitssemi. Vísir/pjetur
Hátt í 200 ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga. Fjöldi kvartana hefur borist frá áhyggjufullum foreldrum til lögreglunnar vegna þessa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu nú í dag. Lögreglan sinnir þessa dagana umferðareftirliti við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og óhætt er að segja að ástandið sé ekki nógu gott. Hraðamælingar í vikunni sýna að hraðakstur við grunnskóla höfuðborgarsvæðisins er algengur. Lögreglan telur því fulla ástæðu til að minna ökumenn á að aka hægar og sýna meiri tillitssemi. Við hraðamælingar á Neshaga í Vesturbænum í nágrenni Melaskóla í dag ók rúmlega fimmtungur ökumanna yfir leyfðum hámarkshraða. Ástandið í Rofabæ við Árbæjarskóla var enn verra, en þar ók tæplega þriðjungur ökumanna of hratt. Sama brotahlutfall var í nágrenni Ölduselsskóla í Hafnarfirði í fyrradag, og í gær ók hátt í fimmtungur ökumanna of hratt fram hjá Klébergsskóla á Kjalarnesi. Loks ber að nefna að helmingur ökumanna, eða 50%, ók of hratt þegar lögreglan var við hraðamælingar í námunda við Hólabrekkuskóla og Fellaskóla í Breiðholti á mánudag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill minna ökumenn á að aka varlega, ekki síst í námunda við skóla, enda margir þar á ferli, meðal annars nýir vegfarendur sem eru að hefja skólagöngu.
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Erlent Fleiri fréttir Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Sjá meira