Kynferðisbrot gegn fötluðum grófari Snærós Sindradóttir skrifar 25. maí 2016 07:00 Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reyjavík. vísir/valli
Kynferðisbrot gegn fötluðu fólki eru oftar grófari og ganga frekar lengra en kynferðisbrot gegn ófötluðu fólki. Í rannsókn Vigdísar Gunnarsdóttur lögfræðings á dómum íslenskra dómstóla á kynferðisbrotum gegn fötluðum þolendum kemur fram að í meirihluta brotanna voru hafðar samfarir við þolendurna. „Verknaðirnir eru almennt grófari. Sams konar brot eru framin gagnvart ófötluðum en miðað við fámenni hópsins er einkennið grófari verknaðir en ella. Það er minna um kynferðislega áreitni. Í meirihluta tilfella er um að ræða kynferðismök,“ segir Svala Ísfeld Ólafsdóttir, leiðbeinandi Vigdísar og dósent við lagadeild HR. „Fyrst og fremst held ég að skýringin sé sú að oft koma gerendur þessara brota fram við fatlað fólk af mikilli vanvirðingu og markaleysi.“ Svala nefnir mál þar sem föðurbróðir tveggja fatlaðra systkina var m.a. dæmdur fyrir að neyða systkinin til að hafa samfarir auk þess að neyða bróðurinn til að horfa á sig hafa samfarir við systur hans. „Þetta er mikil sálræn, andleg þjáning til viðbótar við verknaðinn,“ segir Svala. „Rannsóknir benda til að fatlaðir séu í meiri hættu á að verða fyrir kynferðisbrotum en þeir sem eru það ekki og að brotin séu að jafnaði alvarleg og viðvarandi. Þá hefur verið áætlað að fatlaðir séu allt að fjórum til tíu sinnum líklegri til að verða fyrir kynferðislegri misnotkun en aðrir,“ bætir Svala við. Í 65% tilvika tengjast gerendur þolendum fjölskylduböndum, eru vinir þeirra eða sinna umönnun. „Af þessu leiðir að flestir gerendur tengjast eða þekkja til þolenda með þeim hætti að þeir vita af fötluninni og misnota bágindi þolandans,“ segir Svala. Þá eru fatlaðar konur fjórum sinnum líklegri til að verða fyrir kynferðisofbeldi en karlar.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira