Bjarni bjartsýnn á myndun nýrrar stjórnar undir hans forsæti Heimir Már Pétursson skrifar 30. desember 2016 19:15
Formaður Sjálfstæðisflokksins fékk í dag umboð forseta Íslands til að ljúka stjórnarmyndunarviðræðum við Viðreisn og Bjarta framtíð. Hann er bjartsýnn á að flokkunum takist að ná saman og að ný ríkisstjórn verði tekin við vel áður en Alþingi kemur saman í janúar. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins kom á fund Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands klukkan hálf fimm í dag. En hann hefur að undanförnu átt í óformlegum viðræðum við formenn Viðreisnar og Bjartra framtíðar um myndun ríkisstjórnar sem hefði minnsta mögulegan meirihluta á Alþingi.Hvert er erindi þitt til forseta? „Við ætlum að ræða um stöðuna í þessari stjórnarmyndun. Við höfum aðeins átt samtöl í síma um að það hefur orðið eitthvað ágengt í þessum samtölum við Bjarta framtíð og Viðreisn. Þá er orðin spurning hvort að færa eigi það yfir á formlegri stað,“ sagði Bjarni við komuna á Bessastaði. Formaður Sjálfstæðisflokksins gekk svo í Bessastaðastofu og skrifaði í gestabók samkvæmt hefð áður en hann settist síðan á um tuttugu mínútna fund með Guðna Th. Jóhannessyni í bókastofunni og fór yfir stöðuna í þriðju tilraun flokkanna til myndunar meirihluta á Alþingi. Þegar hann ræddi við fréttamenn strax að fundi loknum sagðist hann vera kominn með umboð forsetans til að ljúka viðræðunum við Bjarta framtíð og Viðreisn. „Já, ég fór yfir það með forsetanum að við höfum þokað málefnavinnunni áfram,“ sagði formaðurinn. Enn stæði þo ýmislegt út af borðinu.Eruð þið komnir lengra með það sem allir vita að eru erfiðustu málin á milli þessara flokka. Eruð þið komnir lengra með þau en í fyrstu tilraun þinni til að mynda stjórn með þessum tveimur flokkum? „Já, já það er alveg ótvírætt.“Þannig að þú ert þá bjartsýnni nú en áður? „Við erum einfaldlega komnir lengra með þau mál. En auðvitað skiptir máli að vanda vel til verka og úttala sig um hluti þegar menn eru að leggja af stað í svona leiðangur. Við vitum öll að þetta er minnsti mögulegi meirihluti sem hægt er að mynda á þinginu. Þótt ekki væri nema bara þess vegna skiptir máli að úttala sig um hluti,“ sagði Bjarni. Þessi stjórnarmyndun hafi í raun verið eini möguleikinn sem verið hafi opinn á þessari stundu. Alþingi kemur næst saman hinn 24. janúar.Ertu hér á Bessastöðum á þessari stundu bjartsýnn á að fyrir þann tíma verði komin ríkisstjórn þessara flokka? „Fyrir 24. janúar. Já ég er alveg vissum að við höfum leitt til lykta þessar viðræður fyrir þann tíma. Og ég er nokkuð bjartsýnn á að við náum í land.“Er gengið út frá því að þú verðir forsætisráðherra í stjórninni ef það tekst að mynda hana? „Já það er gengið út frá því,“ sagði Bjarni Benediktsson.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira