Skoða minnstu flugbrautina í Keflavík fyrir sjúkra- og innanlandsflug Höskuldur Kári Schram skrifar 30. desember 2016 19:00
Innanríkisráðherra skoðar nú hvort hægt sé að opna minnstu flugbrautina á Keflavíkurflugvelli til að þjóna sjúkra- og innanlandsflugi. ISAVIA telur að hægt sé að klára verkið á nokkrum mánuðum fyrir 280 milljónir króna. Minnstu flugbrautinni á Reykjavíkurflugvelli var lokað í júlímánuði síðastliðnum eftir að hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að ríkinu væri skylt að efna samkomulag sitt við borgaryfirvöld sem var undirritað 2013. Um er ræða norðaustur-suðvesturbraut Reykjavíkurflugvallar en nokkrir flugrekstraraðilar hafa lýst yfir óánægju með þessa lokun og telja að hún takmarki notkunarmöguleika flugvallarins. Þeir vilja að brautin verði opnuð á ný þangað til búið verði að finna aðra lausn á málinu. Innanríkisráðuneytið fer með yfirstjórn flugvallamála en í bréfi sem borgarstjóri sendi ráðherra í júlímánuði 2015 er vakin athygli á því að hægt sé að opna sambærilega flugbraut á Keflavíkurflugvelli en þeirri flugbraut var lokað fyrir fimmtán árum.Isavia lét gera kostnaðarmat á framkvæmdum vegna þessa og í minnisblaði sem var sent ráðherra í septembermánuði síðastliðnum eru lagðar fram þrjár lausnir. Sú ódýrasta kostar 280 milljónir en sú dýrasta tæpan einn og hálfan milljarð. Innanríkisráðherra hefur nú þetta mál til skoðunar en í svari ráðuneytis við fyrirspurn fréttastofu kemur fram að vilji ráðherra standi til þess að opna brautina í Keflavík og að nú sé verið að meta mögulegar fjárveitingar til verkefnisins. Leifur Hallgrímsson framkvæmdastjóri Mýflugs, sem sérhæfir sig meðal annars í sjúkraflugi, segir að flugbrautin í Keflavík leysi þó ekki allan vanda. „Hún leysir ekki bráðavandann því það er mjög langt frá Keflavík til Reykjavíkur. Hún leysir ekki bráðavandann ef það þarf að koma sjúklingi undir læknishendur á Landspítalanum því það tekur töluvert lengri tíma ef það þarf að lenda í Keflavík,“ segir Leifur. Fréttastofa óskaði einnig eftir viðtali við Ólöfu Nordal innanríkisráðherra en ráðherra var vant við látinn.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira