Regludrög KPMG um skýjalausnir of einfaldar Jóhann Óli Eiðsson skrifar 28. júlí 2016 17:20 Helga Þórisdóttir er forstjóri Persónuverndar. vísir/Vilhelm
Skýrla KPMG um helstu eiginleika og útfærslur skýjalausna, sem fjármála- og efnahagsráðuneytið lét vinna, dregur upp of einfalda mynd af því flókna skipulagslega, tæknilega og lagalega umhverfi sem skýjalausnir byggja á. Þetta er meðal niðurstaðna umsagnar Persónuverndar um drög að viðmiðunarreglum fyrir notkun skýjalausna hjá ríkisstofnunum. Regludrögin var að finna í skýrslu KPMG. Í skýrslunni eru raktir kostir og ókostir fjögurra tegunda tölvuskýja sem allar eru settar fram sem hugsanlegir valkostir fyrir þjónustukaupa innan opinbera geirans. Persónuvernd telur að meta þurfi í hverju tilviki fyrir sig hvort skýjalausnir henti og þá hvaða tegund hentar best. Í umsögninni kemur fram að athyglivert sé að í skýrslunni sé að stærstum hluta vikið að reynslu ríkja utan ESB og EES af skýjalausnum. Lagaumhverfi þeirra sé talsvert ólík því sem við höfum vanist hér á landi. „Leggja verður til grundvallar að einkaský eða blönduð ský, sem rekin eru á lokuðu neti og eru eingöngu aðgengileg viðkomandi þjónustukaupa, séu best til þess fallin að tryggja upplýsingaöryggi. Engu að síður getur það verið verulegum vafa undirorpið hvort þau geti talist fullnægjandi fyrir vistun ýmissa upplýsinga sem meðhöndla þarf af ítrustu varkarni og í samræmi við ströngustu öryggiskröfur,“ segir meðal annars í niðurstöðum umsagnarinnar. Að endingu segir að Persónuvernd sé reiðubúin til að taka þátt í frekari samvinnu við ráðuneytið til að tryggja að viðmiðunarreglur og leiðbeiningar til ríkisstofnana um notkun skýjalausna samræmist persónuverndarlögum. Umsögnina má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira