Framburður pilts með Williamsheilkenni leiddi til sakfellingar stjúpföður hans Birgir Olgeirsson skrifar 14. janúar 2016 16:25 Atvikið átti sér stað fyrir utan Ásvallalaug í Hafnarfirði í nóvember árið 2013. Vísir/Valgarður
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann til 30 daga fangelsisvistar fyrir að slá stjúpson sinn í andlitið. Refsingin fellur niður haldi maðurinn skilorði í tvö ár. Atvikið átti sér stað í bifreið utan við Ávallalaug við Ásvelli í Hafnarfirði þann fjórða nóvember árið 2013. Maðurinn og móðir piltsins höfðu slitið samvistum um sumarið sama ár og áttu í forræðisdeilum vegna tveggja barna sem þau áttu saman.Leitaði að drengnum sem skrópaði á æfingu Pilturinn mætti á lögreglustöð þann 19. maí árið 2014 ásamt móður sinni og lagði fram kæru á hendur ákærða. Maðurinn neitaði sök um að hafa slegið piltinn en mögulegt væri að hann hefði hlotið áverka þegar maðurinn þurfti að ýta honum inn í bifreið sína. Sagði maðurinn í skýrslutöku að umrætt sinn hafi pilturinn týnst og hann þurft að leita að honum að beiðni móður piltsins. Hafi pilturinn átt að vera í sundi og á æfingu í sundlauginni en hafi þess í stað skrópað og verið að sníkja sígarettur að sögn mannsins. Sagðist maðurinn svo hafa fundið piltinn í sundlauginni en pilturinn hafi ekki viljað koma með honum. Því hafi maðurinn þurft að beita hann afli til að setja hann í bílinn með þeim hætti að hann ýtti, að hann minnti, á axlir brotaþola sem hafði streist á móti. Taldi maðurinn að áverkarnir sem pilturinn hlaut hefðu getað orsakast af því.Sagði stjúpföður sinn reiðan því hann notaði tóbak Sjálfur sagðist pilturinn að hann hefði átt að vera á æfingu í sundlauginni en hafi ekki viljað það, þar sem honum hafi verið illt í maganum. Sagði hann stjúpföður sinn hafa beðið hann um að fara aftur á æfinguna en pilturinn ákveðið að fara í heita pottinn. Stjúpfaðir hans hafi þá látið sækja hann og þegar þeir hafi verið komnir inn í bíl mannsins, þar sem þeir hafi setið frammi í bifreiðinni, hafi stjúpfaðir hans byrjað að æsa piltinn upp og verið „öskureiður“ yfir því að hann hafi ekki farið á æfinguna. Sagðist pilturinn hafa sjálfur sest upp í bílinn.Pilturinn kom fyrir Héraðsdóm Reykjaness rúmlega tveimur árum eftir þann atburð sem var til meðferðar dómsins og gaf sömu sögu og hann hafði í öllum tilfellum áður gefið.Vísir/ValliSagði pilturinn að þegar stjúpfaðir hans hefði orðið svona reiður þá hefði hann sjálfur orðið mjög stressaður og átt í erfiðleikum með að hafa stjórn á sér. Sagði hann stjúpföður sinn hafa áður orðið reiður við hann og það hafi byrjað þegar pilturinn fór að nota tóbak. Sagði hann stjúpföður sinn hafa slegið hann inni í bifreiðinni og hann fengið sprungna vör. Sagði pilturinn höggin hafa verið fleiri en eitt en hann mundi ekki hversu mörg.Pilturinn fæddur með Williamsheilkenni Við dóminn kom fram að pilturinn væri fæddur með Williamsheilkenni og þeir sem væru haldnir þeim sjúkdómi væri fæddir með „fullkomið lygaragen“. Haft var eftir manninum að pilturinn þyrfti aðeins að segja sömu söguna nokkrum sinnum og þá breyttist hún og að pilturinn gæti logið án svipbrigða. Vitni í málinu staðfestu að pilturinn gæti logið en í skýrslu móður hans kom fram að einfalt væri að vita hvort pilturinn hafi verið að ljúga því þá myndi frásögn hans breytast í hvert sinn sem pilturinn segði frá.Sagði sömu sögu tveimur árum síðar Pilturinn kom fyrir Héraðsdóm Reykjaness rúmlega tveimur árum eftir þann atburð sem var til meðferðar dómsins og gaf sömu sögu og hann hafði í öllum tilfellum áður gefið. Þá sögu hefði hann ekki gefið auðveldlega eða án svipbrigða. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness kom fram að pilturinn hefði ekki aðeins verið staðfastur í sínum framburði heldur yrði að ætla að hann væri að segja satt, sé miðað við það að frásögn piltsins hefði átt að taka miklum breytinum á þessum tíma. Með vísan til trúverðugs framburðar piltsins, sem fékk stuðning í framburði móður hans, umsjónarkennara, sálfræðingsins og atvikaskráningar á áfangaheimili, taldi dómurinn hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hafi slegið piltinn í andlitið. Gegn neitun mannsins og með vísan til þess að drengurinn mundi ekki hversu oft maðurinn hefði slegið hann þá þótti ekki sannað að maðurinn hefði slegið piltinn oftar en einu sinni í andlitið. Ásamt 30 daga fangelsisvistar var maðurinn dæmdur til að greiða piltinum 250 þúsund krónur í miskabætur. Sjá dóminn hér.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira