Innlent

Fimm fluttir á sjúkrahús eftir harðan árekstur

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá vettvangi.
Frá vettvangi. Mynd/Aðsend
Fimm voru flutt á sjúkrahús eftir harðan þriggja bifreiða árekstur á Álftanesvegi nú í kvöld.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þurfti að klippa farþega úr einni bifreiðinni.

Lokað var fyrir umferð á Álftanesvegi vegna slyssins en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er vinnu á vettvangi að ljúka og verið að opna veginn á ný.

Ein bifreiðanna eftir slysið.Mynd/Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×