Í skýrslunni kemur fram að Landspítalinn hafi allt frá árinu 2011 gert margvíslegar athugasemdir við aðstöðu, aðbúnað og efndir rekstraraðila á samningunum. Sjúkratryggingar hafi talið þær tilefnislausar og stofnanirnar deilt opinberlega vegna þessa.
Ríkisendurskoðun hvetur velferðarráðuneytið til að höggva á hnútinn. Marka þurfi mun skýrari stefnu um eðli og rekstur sjúkrahótela og tryggja samræmi í samningum milli aðila.
„Það má gera betur í þessum efnum og ljóst að staðan sem nú er uppi er ekki boðleg. Við verðum nú að vinna að lengri tíma lausn í þeim efnum,“ segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.

Fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar að meginvandinn felist í því að stofnanirnar hafi mismunandi sýn á eðli, hlutverk og rekstrarform sjúkrahótelsins, notendahóp þess og þjónustustig.
Síðasta föstudag sagði Heilsumiðstöðin upp samningi við Sjúkratryggingar. Að öllu óbreyttu leggst starfsemin af í lok apríl á þessu ári. Mun því engin gisting vera í boði af hálfu ríkisins fyrir sjúklinga sem þurfa að sækja til höfuðborgarinnar frá öðrum stöðum á landinu.
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri flæðisviðs LSH, segir Landspítala fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar enda taki hún undir öll helstu sjónarmið Landspítala, meðal annars að sjúkrahótelið verði að nýtast sjúklingum spítalans.
Guðlaug Rakel segir Landspítala taka sömuleiðis undir það sjónarmið ráðherra að ófært sé að deilur standi um svo mikilvæga starfsemi á opinberum vettvangi, enda hafi Landspítali aldrei haft frumkvæði að slíku. Þessu verði að linna
„Mikilvægt er að vanda samninga af þessu tagi svo þeir nýtist eins og best verður á kosið. Við erum vonsvikin að svona skyldi fara og að rekstraraðilinn skuli kjósa að segja sig frá verkinu með þessum hætti, fremur en að leita lausna. Við munum gera það sem við getum til að málið hljóti farsæla niðurstöðu hið fyrsta, enda höfum við enga aðra hagsmuni í málinu en þá sem lúta að skjólstæðingum okkar.“
Rekstraraðilar sjúkrahótelsins hafa fengið greitt um 105 milljónir króna að meðaltali ár hvert frá því samningar tókust milli Sjúkratrygginga og Sinnum ehf. Einnig fékk fyrirtækið greiddar svokallaðar efndabætur í tvígang árið 2012 án þess að loforð væri fyrir því í samningum milli aðila.
Ekki náðist í Kolbrúnu Viðarsdóttur, framkvæmdastjóra Heilsumiðstöðvarinnar, við vinnslu fréttarinnar.