Þökkum þjóðinni stuðninginn Kolbrún G. Þorsteinsdóttir skrifar 27. janúar 2016 15:35 Síðastliðinn september stóðu samtökin Á allra vörum fyrir landssöfnun undir yfirskriftinni Einelti er ógeð og var í þetta sinn lögð áhersla á bætt samskipti á meðal barna og unglinga. Á allra vörum völdu Erindi - samtök um samskipti og skólamál með það að markmiði að opna samskiptasetur. Eins og áður tók þjóðin tók söfnuninni vel enda snerta samskiptamál barna og unglinga margar fjölskyldur. Fólk vill láta gott af sér leiða og safnaðist upphæð fyrir rekstri samskiptaseturs í fjögur ár. Fyrir það erum við þjóðinni þakklát. Að baki Erindistanda tíu manns sem hafa áratugareynslu á sviði skólamála sem kennarar, náms – og starfsráðgjafar og uppeldisfræðingar. Þetta eru Anna Hulda Einarsdóttir kennari í Reykjanesbæ, Björg Jónsdóttir kennari í Garðabæ, Karen Ósk Úlfarsdóttir kennari í Reykjavík, Kolbrún G. Þorsteinsdóttir kennari Mosfellsbæ, Kristín Lilliendahl kennari Mosfellsbæ og núverandi kennari við menntavísindasvið Háskóla Íslands, Lóa Hrönn Harðardóttir náms – og starfsráðgjafi við Háskólann í Reykjavík, Svandís Sturludóttir náms – og starfsráðgjafi í Reykjavík, Hermann Jónsson uppeldisfræðingur, Selma Björk Hermannsdóttir framhaldsskólanemi og Sara Dögg Svanhildardóttir kennari og starfskona Erindis. Eftir áratuga reynslu í starfi sá þessi hópur að góð samskipti og gagnkvæm virðing vega þungt innan veggja skólans. Séu þessi atriði ekki í lagi er skólinn ekki líklegur til að sýna hvað í honum og nemendum býr. Opnun samskiptaseturs Erindi, hafa að markmiði að veita með þjónustu sinni markvissan stuðning í hvers kyns samskiptavanda barna og unglinga með sérstaka áherslu á úrræði í samskiptavanda eða eineltismálum. Samskiptamál geta verið flókin úrlausnar og verða alvarleg ef nemendur fá ekki aðstoð áður en í óefni er komið. Því miður eru alltof mörg dæmi þess að börn og unglingar hafi þurft að lúta í lægra haldi vegna samskiptavanda. Því viljum við breyta og kalla á fræðslu og lausnir til handa öllum þeim sem að erfiðum málum koma. Kennum góð samskipti Ráðgjafar Erindis leggja áherslu á að börnum séu kennd jákvæð samskipti og hvernig hægt sé að takast á við erfið samskipti með jákvæðu hugarfari. Það gerir gæfumuninn en er ekki endilega auðvelt í framkvæmd. Foreldrar og kennarar eru í lykilhlutverki í lífi barna og eru þeirra helstu fyrirmyndir. Nemendur sem hefja skólagöngu hafa ekki prófgráður í samskiptum og margir foreldrar myndu þiggja stuðning í uppeldishlutverki sínu. Foreldrar í aðalhlutverki Samskiptavandamál eða eineltismál koma oft upp og reynist mörgum erfiður ljár í þúfu. Markmið hvers kennara er að nemendur nái árangri í námi sínu en ef staðblær bekkjarins eða alls skólans er ekki góður verður minna um námsárangur. Stoðþjónusta skólanna tekst á við verkefni á hverjum degi sem flest eiga rætur að rekja til samskipta nemenda á milli. Foreldar eru í aðalhlutverki þegar kemur að lausn samskiptamála. Foreldrar eru fyrirmyndir barna sinna og verður seint dregið úr mikilvægi þess að börn fari með gott veganesti að heiman út í lífið. Hjá Erindi fá foreldrar fræðslu og ráðgjöf og þann stuðning sem þarf til að auka lífsgæði og hamingju sem hvert barn á skilið að lifa við. Fyrir hönd Erindis, Kolbrún G. Þorsteinsdóttir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar