„Getraun dagsins, hver fær of mikið?“ Jóhann Óli Eiðsson skrifar 27. janúar 2016 22:17 Finnur telur að hlutur verslunarinnar af mjólkinni sé afar lítill. vísir/aðsend/pjetur „
Getraun dagsins. Hver fær of mikið? Munið að neytendur eru búnir að borga 50-60 krónur af hverjum lítra áður en þeir koma í búðina,“ ritar Finnur Árnason, forstjóri Haga, á Facebook-síðu sína. Með fylgir mynd sem sýnir hvernig verðið á mjólkurlítranum úti í Bónus er samansett. Á myndinni má sjá að innkaupsverðið á mjólkurlítranum er 116 krónur, virðisaukaskatturinn nemi fjórtán krónum og níu krónur renni í vasa verslunarinnar. Myndin er að öllum líkindum svar við skýrslu Bændasamtakanna sem birt var í dag. Í skýrslunni benda Bændasamtökin á hluti sem þau segja sýna fram á að verslunin í landinu skili ekki ávinningi af styrkingu krónunnar og lækkun gjalda ýmis konar til neytenda. Því sé vöruverð á Íslandi hærra en það ætti að vera. Verslunin hirði sjálf meira og minna alla hagræðingu í landbúnaði og lækkun gjalda. Í úttekt Bændasamtakanna er meðal annars vitnað til skýrslu Samkeppnisstofnunar um að styrking krónunnar hafi ekki skilað sér til neytenda á árunum 2011 til 2014, úttektar verðlagseftirlits ASÍ um að breyting á vörugjöldum og virðisaukaskatti um áramótin 2014-2015 hafi ekki skilað sér og þrátt fyrir lækkun magntolla á nautakjöt um tvo þriðju á árinu 2014 hafi verðið hækkað um 15 prósent til neytenda. „Ég held að þessi framsetning bændasamtakanna á þessum tímapunkti sé ekki tilviljun. Ég held hún sé dæmigerð smjörklípa. Það standa jú yfir viðræður við stjórnvöld um gerð nýs búvörusamnngs,“ sagði Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hann og Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, áttust við í Kastljósi RÚV í kvöld en þar sagði Andrés meðal annars að samtökin hefðu í hyggju að hrekja tölur Bændasamtakanna á næstu dögum.Getraun dagsins. Hver fær of mikið? Munið að neytendur eru búnir að borga 50-60 krónur áður en þeir koma í búðina:-)Posted by Finnur Árnason on Wednesday, 27 January 2016
Tengdar fréttir Ásakanir Bændasamtakanna smjörklípa til að fela búvörusamning Formaður SVÞ segir Bændasamtökin reyna að dreifa athyglinni frá leynilegum búvörusamnngum sem styrki bændur um rúmlega 200 milljarða á næsta áratug. 27. janúar 2016 19:00 Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira
Ásakanir Bændasamtakanna smjörklípa til að fela búvörusamning Formaður SVÞ segir Bændasamtökin reyna að dreifa athyglinni frá leynilegum búvörusamnngum sem styrki bændur um rúmlega 200 milljarða á næsta áratug. 27. janúar 2016 19:00