Talskona fyrir skotvopnaeign skotin í bakið af fjögurra ára syni sínum Jóhann Óli Eiðsson skrifar 9. mars 2016 17:58 Myndin sýnir ungan dreng munda byssu á skotvopnaráðstefnu í St. Louis. vísir/getty
Jamie Gilt, 31 árs kona sem hefur ötullega barist fyrir rétti sínum og annarra til að eiga skotvopn, var flutt í snatri á sjúkrahús í gær eftir að hún varð fyrir skoti úr hálf sjálfvirkri skammbyssu. Byssumaðurinn var fjögurra ára gamall sonur hennar. Gilt hefur í gegnum tíðina verið dyggur stuðningsmaður þess að hinn almenni borgari geti átt skotvopn. Hefur hún meðal annars haldið úti Facebook-síðu fyrir málstaðinn auk þess sem hún hefur sett inn tíst á Twitter sem tengjast málefninu. Atvikið átti sér stað þegar mæðginin voru á ferð í Jacksonville í Florida. Sonur hennar kom höndum sínum á skammbyssuna þar sem hún lá hlaðin í aftursæti bíl hennar. Skotið reið af, fór í gegnum bílstjórasætið og þaðan í gegnum líkama Gilt. Það var henni til láns að skammt frá var lögreglumaður sem gat aðstoðað hana og komið henni undir læknishendur. „Lögreglumaður í eftirlitsferð sá konuna þar sem hún sat í bíl sínum og veifaði til hans að koma til sín,“ sagði talsmaður lögreglunnar í Putnam-sýslu við fjölmiðla. Á leiðinni á bráðamóttökuna sagði Gilt sjúkraflutningamönnum að sonur hennar hefði tekið í gikkinn. Sonur Gilt er ekki í klandri vegna málsins en hins vegar hefur saksóknari hafið athugun á því hvort háttsemi Gilt, sem varð til þess að drengurinn kom höndum á byssuna, sé saknæm.Posted by Jamie Gilt for Gun Sense on Friday, 12 February 2016
Mest lesið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Erlent Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Innlent Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Innlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Segir Trump ekki reiðan Íslandi Erlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Fleiri fréttir Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Sjá meira