Talsverðar annir hjá björgunarsveitum í gærkvöldi Birgir Olgeirsson skrifar 22. júlí 2016 09:03 Stúlka handleggsbrotnaði á Látraströnd, hlaupari skilaði sér ekki og maður slasaðist í Saurskógi. Vísir
Talsverðar annir voru hjá björgunarsveitum í gærkvöldi. Björgunarsveitir á Norðurlandi voru kallaðar út um kl. 16.30 í gær vegna stúlku sem handleggsbrotnaði í Fossdal á Látraströnd. Stúlkan hafði fallið í brattri hlíð og var orðin köld og hrakin. Verkefnið var afar krefjandi þar sem bera þurfti stúlkuna um langan veg í fjallendi. Engir vegir eru á Látrastönd þannig að ferja þurfti björgunarmenn með bátum frá Akureyri, Dalvík, Grenivík, Ólafsfirði og Ólafsfirði. Talsverðan mannskap þurfti til burðarins og lauk aðgerðum uppúr miðnætti þegar stúlkan var komin til aðhlynningar á Ólafsfirði. Rétt fyrir kl. 17.00 í gær voru björgunarsveitir í Húnavatnssýslum kallaðar út til leitar að konu sem hafði villst í Vatnsnesfjalli í skipulögðu víðavangshlaupi. Konan skilaði sér ekki innan tilskilins tíma og hófu björgunarsveitir leit þegar ljóst var að hlauparinn var í vandræðum. Veðuraðstæður voru frekar slæmar mjög lítið skyggni var á svæðinu, rigning og frekar svalt. Konan kom fram stuttu eftir að leit hófst. Um 20.00 voru björgunarsveitir á Snæfellsnesi kallaðar út vegna manns sem var slasaður á fæti í Sauraskógi við Stykkishólm. Verkefnið gekk fljótt og vel fyrir sig enda um stuttan veg að fara. Björgunarsveitir í Reykjavík voru kallaðar út kl. 21.15 til leitar að þar sem tilkynnt var fallhlífastökkvara í sjónum um 300 metra norður af Gróttu. Bátar frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, bátar og þyrla frá Landhelgisgæslunni auk annarra báta sem voru í nágrenninu tóku þátt í leitinni. Eftir nokkra leit fundust stórar blöðrur á floti og fékkst staðfest að 3-4 stórar gasblöðrur hafi sloppið út veislu í nágrenninu fyrr um kvöldið. Þar sem búið var að leita svæðið mjög vel var talið öruggt að fullnægjandi skýring væri komin og leit því afturkölluð.
Tengdar fréttir Óttast var að fallhlífarmaður hefði farið í sjóinn Mikill viðbúnaður var við Gróttu nú í kvöld en í ljós kom að um gasblöðrur var að ræða. 21. júlí 2016 22:03 Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira
Óttast var að fallhlífarmaður hefði farið í sjóinn Mikill viðbúnaður var við Gróttu nú í kvöld en í ljós kom að um gasblöðrur var að ræða. 21. júlí 2016 22:03