Innlent

Eigandi bíls í skurði við Eyrarbakkaveg fær frest til morguns

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Bílinn valt ofan í skurðinn á gamlárskvöld 2015.
Bílinn valt ofan í skurðinn á gamlárskvöld 2015. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
„Niðurstaðan verður sú að við munum hafa upp á eigandanum og gefum honum frest til hádegis á morgun til að fjarlægja bílinn,“ segir Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurlandi, um bíl sem valt ofan í skurð á gamlárskvöld við Eyrarbakkaveg og er þar enn.

„Verði hann ekki við því þá mun Vegagerðin sjá um að taka hann á kostnað eigandans,“ segir Þorgrímur Óli.

Fjölmargir ökumenn hafa á þessum vikum stoppað við bílinn til að kanna hvort einhver sé í honum og margir þeirra hafa hringt í lögregluna og látið vita af bílum. Skurðurinn er á vegsvæði Eyrarbakkavegar sem er fimmtán metrum út frá miðlínu vegar.

Í 2. mgr. 47. gr vegalaga segir að veghaldara sé heimilt að fjarlægja óviðkomandi hluti eða muni af vegi eða vegsvæði á kostnað eiganda.

„Í þessu tilviki er Vegagerðin veghaldari og ætti samkvæmt þessu að fjarlægja ökutækið á kostnað eiganda hirði hann ekki að gera það sjálfur eins og honum ber að gera. Margsinnis er búið að segja eiganda að fjarlægja bílinn en hann hefur ekki sinnt því,“ segir Þorgrímur Óli.

Margir hafa farið að bílnum til að athuga hvort hann sé nýoltin og hvort einhver er í honum.Vísir/Magnús Hlynur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×