Kaupmenn sem hafa lækkað verð á fatnaði undrast umræðu um enga lækkun Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 1. október 2016 20:30 Vörur hafa lækkað mismikið í verði samkvæmt könnunum Samtaka þjónustu og verslunar. Skór hafa almennt lækkað mest. visir/vilhelm
Kaupmenn sem sannarlega hafa lækkað verð á vörum eftir tollaniðurfellingu á fatnaði og skóm undrast niðurstöður kannanna Hagstofunnar sem sýna fram á að vörur hafi ekki lækkað í verði í samræmi við niðurfellinguna. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu minnir á að tollaniðurfelling skili sér ekki í vörulækkun á öllum vörum. „Það er mjög mikilvægt í þessari umræðu að halda því til haga að allt að 65% af fötum og skóm voru þegar án tolla þegar hin almenna tollaniðurfelling tók gildi síðustu áramót. Þetta gleymist oft í umræðunni og raunar hef ég grun um að sumir haldi þessu ekki fram með vilja. En þetta er lykilatriði,“ segir Andrés Magnússon. Markaðsstjóri Bestseller segir umfjöllun um að verð lækki ekki koma þeim í opna skjöldu. „Við hjá Bestseller lækkuðum allt verð hjá okkur frá 1. janúar. Það er leiðinlegt að svona umfjöllun fari af stað þegar við stöndum við okkar loforð, sem var að lækka allt verð, á vörum sem framleiddar eru utan Evrópu, um fimmtán prósent,“ segir Lovísa Anna Pálmadóttir. En vörur hafa sannarlega lækkað mismikið í verði. Samtök verslunar og þjónustu hafa gert sínar kannanir á verðþróuninni. „Það sem vekur athygli og áhyggjur hjá okkur er að það er munur á verðþróun á skóm annars vegar og fatnaði almennt hins vegar. Við lögðum áherslum við okkar félagsmenn, kaupmenn, að þessu yrði skilað til neytenda. Almennt hafa skór lækkað eins og búist var við en það sama verður ekki sagt um annan fatnað. Því miður,“ segir Andrés. Lovísa segir mikilvægt að kaupmenn séu samtaka í verðlækkunum. Auðvitað ætti það að vera það því þetta er gríðarlega stórt skref fyrir okkur og við höfum beðið eftir þessu. Bæði sem verslunareigendur til að fá tækifæri til að vera samkeppnishæf en líka fyrir neytendur að njóta betri verða,“ segir hún.
Tengdar fréttir Fataverð ekki lækkað í takt við afnám gjalda Fata- og skóverð hefur lækkað mun minna en sem nemur afnámi tolla og styrkingu krónunnar á síðasta ári. Varaformaður Neytendasamtakanna segir þetta vonbrigði. Hann segir afnám tolla ekki hafa átt að skila sér í vasa kaupmanna. 1. október 2016 07:00 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Fleiri fréttir Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Sjá meira
Fataverð ekki lækkað í takt við afnám gjalda Fata- og skóverð hefur lækkað mun minna en sem nemur afnámi tolla og styrkingu krónunnar á síðasta ári. Varaformaður Neytendasamtakanna segir þetta vonbrigði. Hann segir afnám tolla ekki hafa átt að skila sér í vasa kaupmanna. 1. október 2016 07:00