Hver vill 20% verðlækkun? Lárus Lárusson skrifar 26. janúar 2016 12:00 Undir lok árs stóð Samkeppniseftirlitið fyrir opnum fundi með OECD þar sem rætt var um áhrif stjórnvalda á samkeppni. Á fundinum var m.a. fjallað um það hvernig stjórnvöld geta með endurskoðun laga og reglna haft allt að 20% lækkandi áhrif á verð á viðkomandi mörkuðum. Það sem um ræði nánar til tekið er endurskoðun gildandi laga og reglna með það fyrir augum að ryðja úr vegi samkeppnishamlandi ákvæðum eða kerfisbundnum samkeppnishömlum sem geta falist í gildandi reglum eða leitt af þeim. OECD hefur þróað skilvirka aðferðafræði til þess að ná þessum markmiðum og var henni til að mynda beitt á Grikklandi með góðum árangri og skilaði þar ávinningi sem talinn er nema 2,5% af vergri landsframleiðslu Grikklands. Þetta var stór liður í endurreisn landsins. Framangreint hefur augljóslega mikla þýðingu ekki aðeins fyrir neytendur í landinu heldur ekki síður fyrir fyrirtækin í landinu og hagsmuni þeirra af því að geta starfað á markaði þar sem ríkir heilbrigð og virk samkeppni þar sem allir spila eftir sömu leikreglum. Í kjölfarið af svona opinberun, ef svo má að orði komast, hefði margur haldið að stjórnvöld myndu taka á sig rögg og grípa tækifærið til þess að ná svona miklum ávinningi fyrir samfélagið í heild. Því miður virðist sem stjórnvöld hafi skellt skollaeyrum við, alltént ber lítið á viðbrögðum eða aðgerðum af þeirra hálfu. Í gegnum tíðina hefur hið opinbera oft verið mesti samkeppnislagabrjóturinn jafn einkennilega og það kann að hljóma. Skilaboðin fóru sem betur fer ekki fyrir ofan garð og neðan á öllum vígstöðvum. Örfáir forkólfar atvinnulífsins gripu boltann á lofi og hafa tjáð sig um málið í fjölmiðlum. En betur má ef duga skal. Hagsmunirnir sem hér um ræðir eru gríðarmiklir fyrir neytendur og fyrirtæki og ávinningurinn svo mikil að furðu sætir að málið hafi ekki hlotið meiri hljómgrunn. Hvers vegna hefur enginn þingmaður tekið málið upp á sína arma og borið það upp á Alþingi? Eða ráðherra borið það fyrir ríkisstjórn? Aðgerðir sem geta skilað allt að 20% verðlækkun til almennings í landinu á tilteknum mörkuðum ætti að vera ofarlega í forgangsröðinni hjá ríkisstjórninni. Er þá ekki minnst á fleiri jákvæð áhrif sem fylgja í kjölfarið og hafa verið sannreyndar með aðferðafræði OECD. Nú er köllun eftir þeim ráðamanni sem vill annast þessa hagsmuni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Undir lok árs stóð Samkeppniseftirlitið fyrir opnum fundi með OECD þar sem rætt var um áhrif stjórnvalda á samkeppni. Á fundinum var m.a. fjallað um það hvernig stjórnvöld geta með endurskoðun laga og reglna haft allt að 20% lækkandi áhrif á verð á viðkomandi mörkuðum. Það sem um ræði nánar til tekið er endurskoðun gildandi laga og reglna með það fyrir augum að ryðja úr vegi samkeppnishamlandi ákvæðum eða kerfisbundnum samkeppnishömlum sem geta falist í gildandi reglum eða leitt af þeim. OECD hefur þróað skilvirka aðferðafræði til þess að ná þessum markmiðum og var henni til að mynda beitt á Grikklandi með góðum árangri og skilaði þar ávinningi sem talinn er nema 2,5% af vergri landsframleiðslu Grikklands. Þetta var stór liður í endurreisn landsins. Framangreint hefur augljóslega mikla þýðingu ekki aðeins fyrir neytendur í landinu heldur ekki síður fyrir fyrirtækin í landinu og hagsmuni þeirra af því að geta starfað á markaði þar sem ríkir heilbrigð og virk samkeppni þar sem allir spila eftir sömu leikreglum. Í kjölfarið af svona opinberun, ef svo má að orði komast, hefði margur haldið að stjórnvöld myndu taka á sig rögg og grípa tækifærið til þess að ná svona miklum ávinningi fyrir samfélagið í heild. Því miður virðist sem stjórnvöld hafi skellt skollaeyrum við, alltént ber lítið á viðbrögðum eða aðgerðum af þeirra hálfu. Í gegnum tíðina hefur hið opinbera oft verið mesti samkeppnislagabrjóturinn jafn einkennilega og það kann að hljóma. Skilaboðin fóru sem betur fer ekki fyrir ofan garð og neðan á öllum vígstöðvum. Örfáir forkólfar atvinnulífsins gripu boltann á lofi og hafa tjáð sig um málið í fjölmiðlum. En betur má ef duga skal. Hagsmunirnir sem hér um ræðir eru gríðarmiklir fyrir neytendur og fyrirtæki og ávinningurinn svo mikil að furðu sætir að málið hafi ekki hlotið meiri hljómgrunn. Hvers vegna hefur enginn þingmaður tekið málið upp á sína arma og borið það upp á Alþingi? Eða ráðherra borið það fyrir ríkisstjórn? Aðgerðir sem geta skilað allt að 20% verðlækkun til almennings í landinu á tilteknum mörkuðum ætti að vera ofarlega í forgangsröðinni hjá ríkisstjórninni. Er þá ekki minnst á fleiri jákvæð áhrif sem fylgja í kjölfarið og hafa verið sannreyndar með aðferðafræði OECD. Nú er köllun eftir þeim ráðamanni sem vill annast þessa hagsmuni.
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun
Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun