Bardagameistarinn Conor McGregor að kaupa sig inn í Mjölni Garðar Örn Úlfarsson skrifar 31. desember 2016 07:00
Írski bardagameistarinn Conor McGregor hyggst kaupa 14 prósenta hlut í rekstrarfélagi bardagaíþróttastöðvarinnar Mjölnis sem senn flytur í húsnæði gömlu Keiluhallarinnar í Öskjuhlíð.„Hann hefur mikinn áhuga á að kaupa hlut í Mjölni,“ segir Jón Viðar Arnþórsson, formaður stjórnar Mjölnis og annar stærstu eigenda rekstrarfélagsins, en hinn er bardagakappinn Gunnar Nelson. Aðrir minni eigendur eru faðir Gunnars, Haraldur Dean Nelson, Bjarni Baldursson og Árni Þór Jónsson. „Það á að auka hlutafé í Mjölni til að hjálpa okkur við að starta Mjölni í Öskjuhlíð. Þetta er mikil stækkun og kostnaðarsöm og hann vildi hjálpa með það og eiga hlut í þessu,“ segir Jón Viðar sem kveður þó ekkert endanlega frágengið. „En við erum í samskiptum við þá sem sjá um fjármálin hans Conors. Hann er búinn að lýsa því nokkrum sinnum yfir að hann vilji kaupa,“ segir Jón Viðar sem vonast til að viðskiptunum verði lokið í byrjun janúar. „Að hann eigi hlut í Mjölni er alveg gríðarleg auglýsing fyrir okkur erlendis upp á að fá útlendinga til að æfa hjá okkur.“Conor hefur sjálfur æft mikið hjá Mjölni. „Áður en hann varð frægur þá kom hann í Mjölni og átti engan pening og við vorum að lána honum fyrir samlokum,“ rifjar formaður Mjölnis upp. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Erlent Fleiri fréttir Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Sjá meira