Innlent

Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur yfir manni vegna meintrar hnífsstunguárásar

Anton Egilsson skrifar
Dómurinn féll í Hæstarétti Íslands.
Dómurinn féll í Hæstarétti Íslands. vísir/gva
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald á hendur manni grunuðum um hnífsstunguárás. Í vottorði slysadeildar um áverka fórnarlambs hennar kom fram að þeir hafi verið lífshættulegir. 

Samkvæmt fórnarlambinu á meintur árásarmaður að hafa stungið hann í kjölfar rifrildis þeirra og annarra viðstaddra í íbúð í Reykjavík en þar sátu þeir við drykkju. Skömmuðust þeir út í árásarmanninn fyrir að fela fyrir þeim bjór sem þeir töldu að þeir ættu inni hjá honum.

Á maðurinn að hafa tekið illa í þessar athugasemdir þeirra og sótt sér hníf inn í eldhús. Hafi hann svo haldið hnífnum ógnandi og verið æstur. Gerði fórnarlambið þá meðal annars tilraun til að ná hnífnum af honum með því að taka í hendi hans en það hafi endað með því að maðurinn hafi stungið hann í síðuna. Flúði fórnarlambið í kjölfarið inn á baðherbergi íbúðarinnar.

Í vottorði slysadeildar kom fram að áverkinn hafi verið lífshættulegur og manninum hefði getað blætt út ef hnífurinn hefði farið ögn dýpra í lungað eða í hjartað.

Hinn grunaði árásarmaður sagðist ekki kannast við að hafa stungið manninn. Neitaði hann því þó ekki að hnífurinn gæti hafa stungist í fórnarlambið í átökunum. Hann hafi hafi gripið til hnífs til að verjast mönnunum og hræða þá.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem Hæstiréttur staðfesti í dag segir að dómurinn fallist á að sterkur grunur sé um að maðurinn hafi framið brotið. Með tilliti til almannahagsmuna sé nauðsynlegt að tryggja að hann gangi ekki laus á meðan mál hans er til meðferðar. Brot mannsins geta varðað allt að 16 ára fangelsi.  

Lesa má dóm Hæstaréttar í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×