Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur yfir manni vegna meintrar hnífsstunguárásar Anton Egilsson skrifar 12. desember 2016 20:39 Dómurinn féll í Hæstarétti Íslands. vísir/gva
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald á hendur manni grunuðum um hnífsstunguárás. Í vottorði slysadeildar um áverka fórnarlambs hennar kom fram að þeir hafi verið lífshættulegir. Samkvæmt fórnarlambinu á meintur árásarmaður að hafa stungið hann í kjölfar rifrildis þeirra og annarra viðstaddra í íbúð í Reykjavík en þar sátu þeir við drykkju. Skömmuðust þeir út í árásarmanninn fyrir að fela fyrir þeim bjór sem þeir töldu að þeir ættu inni hjá honum. Á maðurinn að hafa tekið illa í þessar athugasemdir þeirra og sótt sér hníf inn í eldhús. Hafi hann svo haldið hnífnum ógnandi og verið æstur. Gerði fórnarlambið þá meðal annars tilraun til að ná hnífnum af honum með því að taka í hendi hans en það hafi endað með því að maðurinn hafi stungið hann í síðuna. Flúði fórnarlambið í kjölfarið inn á baðherbergi íbúðarinnar. Í vottorði slysadeildar kom fram að áverkinn hafi verið lífshættulegur og manninum hefði getað blætt út ef hnífurinn hefði farið ögn dýpra í lungað eða í hjartað. Hinn grunaði árásarmaður sagðist ekki kannast við að hafa stungið manninn. Neitaði hann því þó ekki að hnífurinn gæti hafa stungist í fórnarlambið í átökunum. Hann hafi hafi gripið til hnífs til að verjast mönnunum og hræða þá. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem Hæstiréttur staðfesti í dag segir að dómurinn fallist á að sterkur grunur sé um að maðurinn hafi framið brotið. Með tilliti til almannahagsmuna sé nauðsynlegt að tryggja að hann gangi ekki laus á meðan mál hans er til meðferðar. Brot mannsins geta varðað allt að 16 ára fangelsi. Lesa má dóm Hæstaréttar í heild sinni hér.
Mest lesið Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Erlent Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Innlent „Við hættum bara að keyra um leið og við förum í símann“ Innlent Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta Innlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Væri frábært ef Landspítalinn vildi reka leikskóla Innlent Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Innlent Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar Innlent Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Innlent „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Þingmenn sem hætta og hagræðing í skötulíki Vilhjálmur sýni kjósendum virðingarleysi „Siðareglurnar bara enn eitt leikritið af hálfu þessarar ríkisstjórnar“ Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta Lögsækja Reykjavíkurborg Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Ánægja með Höllu eykst Væri frábært ef Landspítalinn vildi reka leikskóla Tveir handteknir vegna líkamsárásar og fleiri í tengslum við rán og þjófnað „Við hættum bara að keyra um leið og við förum í símann“ Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Ökumenn séu of óþolinmóðir fyrir steypta vegi Þúsund myndavélar fylgjast með því sem fram fer á flugvellinum Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Sjá meira