Innlent

Meintur árásarmaður var handtekinn í Hafnarfirði

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Maðurinn stakk konuna í handlegginn, en hún er starfsmaður hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
Maðurinn stakk konuna í handlegginn, en hún er starfsmaður hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. vísir/gva
Karlmaður á fertugsaldri, sem grunaður er um að hafa stungið konu með hnífi í húsakynnum Greiningar- og ráðgjafastöðvar ríkisins við Digranesveg í Kópavogi í morgun, var handtekinn í Hafnarfirði skömmu eftir árásina.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu stakk maðurinn konuna í handlegginn en hún er ekki talin alvarlega slösuð. Hún er starfsmaður á Greiningarstöðinni en ekki liggur fyrir hvort árásarmaðurinn hafi verið skjólstæðingur þar. Engin persónuleg tengsl eru á milli mannsins og konunnar.

Mikill viðbúnaður var við Greiningarstöðina í morgun eftir að tilkynning barst um árásina. Sérsveit lögreglu var kölluð út ásamt miklum fjölda lögreglumanna. Stöðinni var samstundis lokað, og verður lokað það sem af er þessum degi í það minnsta.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins tryggir börnum og unglingum með alvarlegar þroskaraskanir og fatlanir greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem miða að því að auka möguleika þeirra til sjálfstæðis á fullorðinsárum, að því er segir á vefsíðu þeirra.


Tengdar fréttir

Hnífstunga í Kópavogi

Lögreglan rannsakar nú hnífstunguárás sem átti sér stað á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins við Digranesveg í Kópavogi í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×