Dagurinn þegar Bandaríkin réðust á sjálf sig Sölvi Jónsson skrifar 1. desember 2016 07:00 Þann 11. september fyrir fimmtán árum síðan hrundu þrír turnar í New York (tvíburaturnarnir og turn 7) vegna þess að turnarnir voru sprengdir (controlled demolition). Yfir 3.000 manns voru myrtir og í stríði Bandaríkjanna, sem á eftir fylgdi gegn hryðjuverkum, hafa minnst 1,3 milljónir manna verið myrtar. Þetta eru varlega áætlaðar tölur fyrir Írak, Afganistan og Pakistan frá árinu 2015 (sumir segja að tala látinna sé yfir 4 milljónir). Það verður ekki betur séð en 11. september hafi verið í boði hergagnaiðnaðarins til að hefja ömurleg og fullkomlega ónauðsynleg stríð. Til hvers að framleiða vopn ef þau eru aldrei notuð? Við eigum víst að trúa því (og flestir trúa því reyndar því miður) að þennan dag hafi þrír stálstyrktir turnar hrunið vegna elda. Hvorki fyrr né síðar í sögunni hefur þetta gerst. Þennan dag hrundu sem sagt ekki einn heldur þrír turnar af þessari ástæðu. Turn 7 hrundi sjö tímum eftir að seinni tvíburaturninn hrundi. Turn 7 fékk ekki flugvél inn í sig heldur brak úr tvíburaturnunum yfir sig. Turninn var 47 hæðir og það loguðu eldar á einangruðum stöðum á 10 hæðum. Fall turnsins tók innan við sjö sekúndur og yfir 30 metrar af turninum (átta hæðir) féllu í frjálsu falli, sem þýðir að það var engin fyrirstaða, og slíkt getur aðeins gerst í controlled demolition. Opinbera samsærisskýringin „pönnukökukenningin“ svokallaða, sem á að skýra hrun turnanna þriggja, fellur um sjálfa sig vegna þess að steypan í turnunum varð að dufti. Í braki turnanna var engar heillegar hæðir að sjá sem áttu þá að hafa fallið hver ofan á aðrar eins og dómínókubbar. Slíkt brak hefði átt að vera ígildi a.m.k. 20 hæða í tvíburaturnunum. Ef turnarnir hefðu hrunið vegna elda þá hefði það sennilega gerst þannig að turnarnir hefðu hallað smátt og smátt til hliðar út frá skemmdunum þar sem flugvélarnar hæfðu þá og hluti af turnunum fallið til jarðar. Í stað þess þá hrundu turnarnir í heild sinni og féllu að mestu í sitt eigið stæði eins og gerist í controlled demolition. Eldar út frá flugvélaeldsneyti geta ekki brætt stál enda voru turnarnir beinlínis hannaðir til þess að þola að fá flugvél inn í sig. Myndir frá vettvangi glæpsins sýna sveigða/brædda/klippta stálstólpa. Sönnunargögnunum var hins vegar snarlega eytt – stálið selt í bræðslu, aðallega til Kína. Leifar af sprengiefni (nano-thermite) fundust í rústunum og eldar loguðu undir rústunum svo vikum skipti og mældust þeir nálægt 760 gráðum sem er meiri hiti en myndast við flestallan bruna. Bræðslumark stáls og járns er ca 1.540 gráður. Yfir 100 slökkviliðsmenn sögðust hafa heyrt sprengingar og séð ljósglæringar þegar turnarnir hrundu. Mjög neyðarlegt hlýtur að teljast þegar fréttakona BBC sagði frá hruni turns 7 í beinni útsendingu um 20 mínútum áður en turninn hrundi. Meira að segja með turninn greinilega uppistandandi á bak við sig. Fréttakonan talaði ofan úr háhýsi. Þetta hefur verið afsakað þannig að menn hafi gert ráð fyrir hruni turnsins vegna elda sem loguðu – og það þrátt fyrir að aldrei í sögunni hafi turn þessarar gerðar hrunið vegna elda. Heimildir greinarinnar voru að mestu sóttar í netsíðuna: „Architects and engineers for 9/11 truth“. Body count: Casualty figures after 10 years of the “War on terror” (grein): https://www.psr.org/assets/pdfs/body-count.pdf Do the math: Global war on terror has killed 4 million muslims or more (grein): https://www.mintpressnews.com/do-the-math-global-war-on-terror-has-killed-4-million-muslims-or-more/208225/ Twin towers evidence blows away fire collapse theory (grein): https://www1.ae911truth.org/faqs/345-twin-towers-evidence-blows-away-fire-theory.html Building 7 implosion: The Smoking gun of 9/11 (grein): https://www1.ae911truth.org/home/344-building-7-implosion-the-smoking-gun-of-911.html 118 Witnesses: The Firefighters´ testimony to explosions in the Twin Towers (grein): https://www.journalof911studies.com/articles/Article_5_118Witnesses_WorldTradeCenter.pdf 9/11: Explosive evidence - Experts speak out (heimildarmynd): https://www.youtube.com/watch?v=4tTMMNTisBM North tower exploding (myndband): https://www.youtube.com/watch?v=hSApOavkHg8 Cutter charges in the north tower of the world trade center (myndband): https://www.youtube.com/watch?v=zoAD8HlrLZg Thermite used on 9/11 (myndband): https://www.youtube.com/watch?v=3-jeQmW5wiA&feature=youtu.be BBC reported building 7 collapse 20 minutes before it fell (myndband): ENHANCED VERSION: News Reports WTC7 Fell Before It Happens! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ýmislegt um rafmagnsbíla og reiðhjól Valur Elli Valsson Skoðun Samkennd samfélags Guðrún Karls Helgudóttir Skoðun Þeir borga sem nota! Tómas Kristjánsson Skoðun Íþróttahreyfingin og gerviverktaka Ástþór Jón Ragnheiðarson Skoðun Að hjálpa fólki að standa á eigin fótum Jón Þór Kristjánsson Skoðun Óttinn við íslensku rafkrónuna Birna Guðný Björnsdóttir Skoðun Hver er ég og hvert er ég að fara? Ellý Tómasdóttir Skoðun Taugatýpísk forréttindi Mamiko Dís Ragnarsdóttir Skoðun Tölum um tilfinningar Amanda Ásdís Jóhannsdóttir Skoðun Áskorun til Sjúkratrygginga Íslands – hugsum í lausnum Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Íþróttahreyfingin og gerviverktaka Ástþór Jón Ragnheiðarson skrifar Skoðun Tölum um tilfinningar Amanda Ásdís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Óttinn við íslensku rafkrónuna Birna Guðný Björnsdóttir skrifar Skoðun Áskorun til Sjúkratrygginga Íslands – hugsum í lausnum Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Afnemum launamisrétti Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Hvað hefur Ísland gert? Katla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Viðhorf almennings og neytenda til sjálfbærnimála fyrirtækja og stofnana skiptir miklu máli Soffía Sigurgeirsdóttir,Trausti Haraldsson skrifar Skoðun Ýmislegt um rafmagnsbíla og reiðhjól Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Taugatýpísk forréttindi Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Hver er ég og hvert er ég að fara? Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Þeir borga sem nota! Tómas Kristjánsson skrifar Skoðun Að hjálpa fólki að standa á eigin fótum Jón Þór Kristjánsson skrifar Skoðun Samkennd samfélags Guðrún Karls Helgudóttir skrifar Skoðun „Heimferða- og fylgdadeild“ Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Til varnar mennsku kúgarans Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Þegar ómennskan vitnar í lög Bubbi Morthens skrifar Skoðun Engum til sóma Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Góðan daginn, ég ætla að fá … ENGLISH PLEASE! Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Vernd náttúrunnar er ákvörðun Eva Dögg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hver er okkar ábyrgð á ofbeldi meðal barna Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Er verkalýðsbarátta á Íslandi að hnigna? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Má ekkert gera fyrir millistéttina? Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milljarðarnir óteljandi og bókun 35 Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Háskólinn sveik stúdenta um góðar samgöngur Guðni Thorlacius,Katla Ólafsdóttir skrifar Skoðun „Bara“ kennari Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin slæst við elda: Hvar er Alþingi? Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Yazan Tamimi – spegill á sjálfsmynd þjóðar Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Hvað er niðurskurðarstefna? Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Framtíðin liggur í bættri nýtingu auðlinda Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Öryggi sjúklinga – gerum og greinum betur Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Viðhorf almennings og neytenda til sjálfbærnimála fyrirtækja og stofnana skiptir miklu máli Soffía Sigurgeirsdóttir,Trausti Haraldsson skrifar