Stór hluti listaverksins Nimis á Skáni brann Atli Ísleifsson skrifar 25. nóvember 2016 09:38 Lögreglu barst tilkynning um eldinn um kvöldmatarleytið í gær og er ljóst að um íkveikju sé að ræða. Vísir/AFP
Stóri hluti Nimis, listaverks sænska listamannsins Lars Vilks á Skáni, varð eldi að bráð í gærkvöldi.Sydsvenskan segir frá því að um fjórðungur verksins hafi brunnið til kaldra kola, fyrst og fremst sá hluti verksins sem stendur næst sjávarmálinu. Lögreglu barst tilkynning um eldinn um kvöldmatarleytið í gær og er ljóst að um íkveikju sé að ræða. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.Listaverkið er að finna á torsóttum stað á norðvesturströnd Skánar á náttúruverndarsvæðinu Kullaberg. Áætlað er að um þrjátíu þúsund manns sæki staðinn á ári hverju. Vilks hóf smíði verksins árið 1980 og hefur í raun unnið að smíði þess æ síðan. Það er unnið úr rekavið og timbri með turnum sem sumir standa 25 metra upp í loftið. Verkið er mjög umdeilt enda er það smíðað án leyfis frá sænskum yfirvöldum. Nimis var á árunum 1984 til 1986 í eigu þýska listamannsins Joseph Beuys og síðar í eigu búlgarska listamannsins Christo.Vilks sjálfur er líkt og listaverkið mjög umdeildur. Hann var einn ræðumanna á fundi um tjáningarfrelsi í Kaupmannahöfn í febrúar 2015 þegar maður að nafni Omar Abdel Hamid El-Hussein réðst þar inn í þeim tilgangi að bana Vilks og hóf skothríð með þeim afleiðingum að einn maður fórst. Vilks komst lífs undan. Nokkrum tímum síðar myrti El-Hussein öryggisvörð fyrir utan bænahús gyðinga í borginni. El-Hussein fórst svo nokkru síðar eftir skotbardaga við lögreglu.
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira