Eiginkonan úr King of Queens hjólar í Vísindakirkjuna í nýrri þáttaröð Birgir Olgeirsson skrifar 27. október 2016 22:58 Leah Remini. Vísir/Getty
Heimildarþáttaröð bandarísku leikkonunnar Leah Remini um Vísindakirkjuna verður frumsýnd 29. nóvember næstkomandi í Bandaríkjunum. Remini, sem er hvað þekktust fyrir að leika Carrie Heffernan, eiginkonu Doug Heffernan í gamanþáttaröðinni King of Queens, ræðir við fyrrum meðlimi Vísindakirkjunnar sem allir halda því fram að þeir hafi orðið fyrir misnotkun og áreitni af hálfu starfsmanna kirkjunnar.Kevin James og Leah Remini í King of Queens.Vísir/GettyHópur af fyrrverandi háttsettum meðlimum innan kirkjunnar hjálpaði Remini að nálgast viðfangsefnið á afar ítarlegan hátt. „Þessi samtök, sem velta milljörðum, hafa of lengi komist upp með að kúga fórnarlömb sín og blaðamenn sem reyna að segja sannleikann um starfsemi kirkjunnar. Það er von mín að þessi þáttaröð muni varpa ljósi á upplýsingar sem gerir fólk upplýst um það sem gengur í raun á þarna innandyra og hvetji aðra til að tala svo hægt verði að binda endi á ofbeldið. Ég vona að fólkið sem sagði skilið við kirkjuna finni fyrir öryggi vitandi að það getur núna leitað skjóls. Ég vona að aðrir sem hafa upplifað ofbeldi innan kirkjunnar stígi fram og hjálpi okkur að berjast gegn þessu,“ segir Remini. Hún sjálf yfirgaf Vísindakirkjuna árið 2013 eftir að hafa verið meðlimur hennar í 30 ár. Það gerðist mánuðum eftir að bók Lawrence Wright um kirkjuna, Going Clear: Sceintology, Hollywood and the Prison of Belief, kom út. Sú bók var grunnurinn að samnefndri heimildarmynd kvikmyndagerðarmannsins Paul Haggis sem sjálfur yfirgaf Vísindakirkjuna með látum nokkrum árum á undan Remini. Hún gaf út bókina Troublemaker: Surviving Hollywood and Scientology árið 2015.
Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Fleiri fréttir Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið