Jóhannes Þór segir Jónas dóna og bjána Jakob Bjarnar skrifar 10. október 2016 14:26 Víst er að Jónas er enginn augnakarl í ranni Framsóknarmanna. Jóhannes Þór segir nú bjánaskrifin slík að hann verði að fetta fingur út í þau.
Jóhannes Þór Skúlason, fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, vandar Jónasi Kristjánssyni, fyrrverandi ritstjóra ekki kveðjurnar á Facebook-síðu sinni. Jóhannes segir Jónas fara með staðlausa stafi þar sem hann talar um að Sigmundur Davíð sé dýrasti þingmaðurinn. Það gerir hann í nýlegum pistli á síðu sinni. Þar segir meðal annars: „Sigmundur Davíð hefur ekki verið ráðherra í allt sumar. Samt hefur honum tekizt að halda aðstoðarmann, bíl og bílstjóra á ríkiskostnað. Líklega á grundvelli frekjunnar.“Langlundargeð Framsóknarmanna gagnvart óvægnum skrifum Jónasar er á þrotum, ef marka má Facebookfærslu Jóhannesar Þórs.Jónas hefur lengi reynt á langlundargeð Framsóknarmanna en nú er það á þrotum ef marka má skrif Jóhannesar Þórs sem skefur ekki utan af því: „Ég reyni nú yfirleitt að leiða bjánaskrif Jónasar Kristjánssonar hjá mér, en þegar hann beinlínis hendir í mig fullkomnu kjaftæði þá get ég ekki látið hjá líða að benda á að það, eins og svo margt annað sem Jónas skrifar, á ekki við nokkur rök eða sannleika að styðjast,“ segir Jóhannes Þór, og heldur svo áfram: „Það er semsagt ekki sannur stafur í þessum pistli. Enginn bílstjóri, enginn bíll og eini aðstoðarmaðurinn er ég, ráðinn af Alþingi skv. reglunni um að allir formenn stjórnmálaflokka sem sitja á þingi en eru ekki ráðherrar megi ráða aðstoðarmann í fullu starfi.“ Jóhannes Þór segir að endingu þetta ágætt dæmi um „sannleiksást dónans Jónasar.“
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira