Lífið

Líkaminn er hljóðfæri

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Það er dásamlegt að fylgjast með fólki sem hefur fengið stimpilinn laglaus og heyra það flytja laglínur,“ segir Sólrún.
"Það er dásamlegt að fylgjast með fólki sem hefur fengið stimpilinn laglaus og heyra það flytja laglínur,“ segir Sólrún. Vísir/Stefán
„Ég er að byggja upp námskeið fyrir alla sem vilja kynnast röddinni sinni og nota hana. Þar eru þrjár kjarnaleiðir, ein fyrir sólóista, önnur fyrir söngáhugafólk og sú þriðja fyrir þá sem kjósa radd- og sjálfseflingu,“ segir Sólrún Bragadóttir söngkona um starfsemi síns nýstofnaða söngskóla Allelúja sem er til húsa í Tónskóla Sigursveins í Hraunbergi í Breiðholti.

Hún kveðst hafa afbragðs fólk með sér við skólann. „Við héldum opnunarhátíð síðasta fimmtudag í Fella- og Hólakirkju, þar mætti fólk á öllum aldri sem söng og hreyfði sig og þar myndaðist dásamlegur kór,“ segir hún. T

ekur þó fram að námið í skólanum verði einstaklingsmiðað, hvort sem um verði að ræða sólósöngvara eða jafnvel einhverja sem aldrei hafi sungið. „Það er dásamlegt að fylgjast með fólki sem hefur fengið stimpilinn laglaus og heyra það flytja laglínur. Fá það til að nota röddina og frelsast á vissan hátt.“

Hún segir röddina vera vissan spegil á líðan fólks. „Líkaminn er í raun hljóðfæri; streita, áreiti og ójafnvægi hefur áhrif á slímhúðina og þá líka röddina,“ útskýrir hún og kveðst byggja kennsluna á eigin reynslu.

Sólrún býr bæði á Íslandi og Ítalíu. „Ég er að færa mig meira heim og skapa grundvöll fyrir skólastarfið hér en tengi það líka sumarskóla á Ítalíu. Þar er ég búin að fá aðgengi að fallegu klaustri og þangað getur fólk komið og unnið með röddina sína,“ segir hún.

Þetta haust er prufutími að sögn Sólrúnar. „Við njörvum námið ekki niður eins og venjulegir tónlistarskólar. Fyrsta námskeiðið byrjaði 7. október hjá okkur og svo erum við líka með helgarnámskeið og enn auðvelt að hafa samband og skrá sig,“ segir Sólrún sem er með heimasíðuna www.soulflowsinging.com



Greinin birtist fyrst 11. október 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×