Veita frelsi 11. október 2016 10:00 Kvikmynd Erlings Óttars, Child Eater, gerist í litlum bæ í Bandaríkjunum og segir frá ungri stúlku sem er fengin til að passa lítinn strák sem síðan hverfur sporlaust.
Ég hef verið mikill aðdáandi hryllingsmynda frá því ég var barn. Eitt af því sem heillar mig við hrollvekjur er tilfinningin sem maður upplifir þegar maður situr í fullum bíósal og allir eru spenntir og öskrandi. En faglega, þá heillar frelsið. Hrollvekjur veita manni mikið frelsi til að gera alls konar skrýtna hluti og leika sér með myndmálið og myndavélina. Ætli það megi ekki segja að hrollvekjan hafi fundið mig og ég gefið mig henni á vald,“ segir leikstjórinn Erlingur Óttar Thoroddsen um hrollvekjuna Child Eater sem verður heimsfrumsýnd á Brooklyn Horror Film Festival þann 16. október. Myndin, sem er fyrsta kvikmynd leikstjórans í fullri lengd, er lokamynd hátíðarinnar og seldist upp á sýningu hennar á innan við klukkustund. Erlingur Óttar útskrifaðist með MFA-gráðu í kvikmyndaleikstjórn frá Columbia University í New York árið 2013. Lokaverkefni hans frá skólanum voru stuttmyndirnar Child Eater og The Banishing, en sú fyrri hlaut mikið lof frá gagnrýnendum og var sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim. Child Eater gerist í litlum bæ í Bandaríkjunum og segir frá ungri stúlku sem er fengin til að passa lítinn strák sem síðan hverfur sporlaust. „Í bænum gengur saga manna á milli um dularfullan mann sem býr í skóginum og borðar augun úr börnum svo hann verði sjálfur ekki blindur. Litli strákurinn segir barnfóstrunni frá manni sem felur sig inni í skápnum í herberginu hans og svo hverfur hann og stelpan fer út að leita,“ segir Erlingur þegar hann er beðinn um að lýsa söguþræði myndarinnar. „Hugmyndin var að gera mynd í anda hrollvekja níunda áratugarins með íkonísku illmenni, eins og Nightmare on Elmstreet. Eftir velgengni stuttmyndarinnar kom upp sú pæling að gera mynd í fullri lengd. Vandinn sem við stóðum frammi fyrir þá var hvernig við ætluðum að lengja hana og fylla í eyðurnar,“ útskýrir hann. Við tók langt ferli þar sem Erlingur Óttar skrifaði fjölda uppkasta að lengra handriti. „Þegar maður byrjar skrifar maður eins og maður sé með endalaust fjármagn, en svo þarf maður að sníða sér stakk eftir vexti, þannig að handritið breyttist heilan helling frá fyrsta uppkasti og til þess síðasta.“Erlingur Óttar ?Thoroddsen, leikstjóri.Inntur eftir því hvort hann sé fyrsti íslenski leikstjórinn sem sérhæfir sig í hrollvekjum, telur Erlingur svo vera. „Það eru auðvitað til íslenskar hrollvekjur, en þeir leikstjórar hafa þá yfirleitt gert bara eina hrollvekju og svo snúið sér að öðrum verkefnum. Ég held að ég sé sá eini sem hefur sérhæft sig í þessari tegund kvikmynda.“ Aðspurður segir hann ýmis verkefni í bígerð – allt hrollvekjur, auðvitað – og það sé bara spurning hvaða verkefni verði fyrst fyrir valinu. „Ég er líka að leggja lokahönd á mynd sem ber heitið Rökkur og var tekin upp á Íslandi í vor. Svo hef ég átt fundi með hinum og þessum aðilum innan bransans úti í Bandaríkjunum, en þetta er þannig heimur að fólk talar mikið og stórt þannig að maður veit aldrei hvað kemur út úr þeim fundum. Ég lít bara á þetta sem tækifæri til að kynnast fólki og stækka tengslanetið.“ Child Eater verður Evrópufrumsýnd í Bíói Paradís þann 28. október, helgina fyrir hrekkjavöku.Erlingur Óttar, leikstjóri, Child EaterSara McMahon
Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira