Megináhersla á jafna stöðu allra kynja í mannréttindastefnu borgarinnar Jakob Bjarnar skrifar 18. október 2016 16:17 Ýmsir komu að gerð nýrrar mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar. visir/ernir „
Til hamingju Reykvíkingar með nýja mannréttindastefnu borgarinnar sem var samþykkt samhljóða hér í borgarstjórn rétt í þessu. Til hamingju Ísland,“ tilkynnti Líf Magneudóttir á Facebooksíðu sinni nú fyrir stundu. Um er að ræða býsna viðamikið plagg en þar segir meðal annars að að hafa skuli jafnræði borgaranna og mannréttindi að leiðarljósi í öllu starfi og hefur Reykjavíkurborg einsett sér að vera í „fararbroddi í mannréttindamálum með megin áherslu á jafna stöðu allra kynja.“ Með þessari mannréttindastefnu er lagt upp með að unnið verði gegn „margþættri mismunun og lögð áhersla á heildstæða sýn í þágu borgarbúa þar sem margir tilheyra fleiri en einum þeirra hópa sem hún nær til.“Kynjapólitík áberandi í mannréttindastefnunni Ekki er ofsagt að nokkuð sé lagt upp úr kynjapólitík í mannréttindastefnunni en hún er meðal annars byggð á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna, jafnréttislögum: „Áherslan á jafnan rétt kvenna og karla skal vera sýnileg í allri starfsemi borgarinnar og staða kynja á að skoðast sérstaklega í öllum þeim hópum sem stefnan nær til.“ Í öðrum kafla er farið nánar í saumana á því hvað þetta þýðir. Við skipan í nefndir skulu hlutföll kynja vera jöfn og aldrei minna en 40 prósent þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða. Við úthlutun fjármagns skal taka mið af þörfum og viðhorfum kynja og reina áhrif ákvarðana á stöðu þeirra.Í nýrri mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar er kveðið á um að barist verði gegn vændi og nektarbúllum.visir/valli„Reykjavíkurborg nýtir aðferðir og tæki kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar til þessa.“Ætla að sporna gegn vændi og nektarstöðum Þá segir jafnframt að Reykjavíkurborg ætli sér að vinna gegn kynbundnu ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt og skal öll starfsemi borgarinnar taka mið af þessu markmiði. Þá einsetur Reykjavíkurborg „sér að vinna gegn kynferðislegu ofbeldi, vændi og mansali. Af þeim sökum er mikilvægt, í samvinnu við lögreglu, að sporna gegn rekstri nektardansstaða og rekstri sem snýst um vændiskaup.“ Þá segir einnig að Reykjavíkurborg leggi áherslu á að borgarmyndin taki tillit til allra kynja í skipulagi til dæmis í þeim útilistaverkum sem sett eru upp.Ýmsir komu að gerð nýrrar mannréttindastefnu Að sögn Lífar gætir ýmissa nýjunga í stefnunni. Hópurinn sem kom að gerð mannréttindastefnunnar var skipaður af borgarráði. Mannréttindaráð kom hins vegar ekkert að málum. Ragnar Hansson var skipaður af Bjartri framtíð, Sabine Leskopf tók þátt fyrir hönd Samfylkingar, Kjartan Jónsson var fyrir Pírata og Magnús Sveinbjörnsson kom í hópinn frá Sjálfstæðisflokki.Líf er afar sátt við nýja mannréttindastefnu, það skipti sköpum að jaðarsettir hópar njóti sömu réttinda og séu metnir að verðleikum.Líf segir að Framsókn hafi einnig haft aðkomu að málinu en fulltrúar flokksins hafi verið ýmsir á tímabilinu. Fyrst var Sigríður Nanna Jónsdóttir tilnefnd en hún baðst lausnar vegna anna. Þá var tilnefndur Vilhjálmur Sörli Pétursson sem sat einn fund en þurfti frá að hverfa vegna kynjasjónarmiða. Að lokum kom Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir inn í hópinn og tók Jóna Björg Sætran síðan við af henni þegar Sveinbjörg fór í fæðingarorlof. Starfsmaður hópsins var Halldóra Gunnarsdóttir sérfræðingur frá mannréttindaskrifstofu.Líf himinlifandi með nýja stefnuEn, af hverju er Líf svona ánægð með þessa endurskoðuðu nýsamþykktu mannréttindastefnu?„Við höfum lagt okkur fram við að gera hópa sem oft fá of litla umfjöllun eða hreinlega gleymast - sýnilega. Á þetta til dæmis við um fatlað fólk, börn, fólk af erlendum uppruna og hinsegin fólk. Það skiptir sköpum að jaðarsettir hópar og hópar með lágværa rödd njóti sömu réttinda og aðrir hópar og séu metnir að verðleikum í borgarsamfélaginu. Við eigum öll tilverurétt í Reykjavík. Reykjavíkurborg þarf að endurspegla fjölbreytni borgarbúa í öllu sínu starfi og vinna heildstætt eftir samræmdri mannréttindastefnu til dæmis eins og í mannaráðningum og þjónustuveitingu. Með stefnunni er lagður grunnur að því að fólki sé ekki mismunað og að allir hópar hljóti viðurkenningu og séu sýnilegir. Að þjónusta sé markvissari og laus við fordóma eða mismunun og að gagnkvæmur skilningur skapist á ólíkum aðstæðum fólks eða lífssýn,“ segir Líf í samtali við Vísi.
Mest lesið Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Innlent Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Innlent Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veður Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Innlent Fleiri fréttir Rabarbari hafinn til vegs og virðingar á Blönduósi Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Langreyðarnar komnar á land Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Íris Edda ráðin sveitarstjóri á Vopnafirði Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig 86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Ráðherra vill varamótor Herjólfs tiltækan hérlendis Pólitískur ólgusjór í Bretlandi, hvalveiðar og banvæn hitabylgja „Best að taka menn og sekta duglega“ Briddsarar í toppformi leggjast í víking til Ríga Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Sjá meira