Algengt að læknar vísi á sjálfan sig Nadine Guðrún Yaghi skrifar 5. október 2016 20:00
Rúmlega helmingur lækna á Landspítalanum er í hlutastarfi. Landlæknir telur algengt að þeir læknar vísi sjúklingum sínum á spítalanum til sín á einkastofu. Það sé ekki í lagi og að bregðast þurfi við. Um fimmtíu til sextíu prósent lækna á Landspítalanum eru í hlutastarfi en landlæknir segir flesta af þeim læknum einnig vera í hlutastarfi á einkastofu. „og þeir vísi sínum sjúklingum til sín á einkastofu. Það er eitthvað sem ég held að sé nokkuð algengt,“ segir Birgir Jakobsson landlæknir. Þetta sé ekki leyfilegt í þeim löndum sem hann þekkir til. „Þar eru mjög ákveðnar reglur um aukastörf heilbrigðisstarfsfólks vegna þess að þú þarft að hafa ákveðið traust og ekki þannig að þú getir raunverulega verið grunaður um að maka krókinn af þínu aðalstarfi,“ segir hann. Þorbjörn Jónsson, formaður læknafélags Íslands, segir ekki hægt að fullyrða að slík hlutastörf séu óeðlileg. „Nei bara alls ekki. Það er vegna þess að við getum ekki borið okkar aðstæður saman við aðstæður í samfélögum sem eru miklu miklu stærri og hafa miklu fleiri lækna per sérgrein,“ segir Þorbjörn og bætir við að hann hafi auðvitað ekkert á móti því að Landlæknir kanni málið. Birgir útskýrir að þessi staða hafi verið að þróast hér á landi síðustu áratugi. Það sé verið að bregðast við, en þingsályktunartillaga heilbrigðisráðherra um heilbrigðisstefnu til ársins 2022, taki vel á þessu máli. Í henni segir að marka þurfi skýra stefnu í mannauðsmálum heilbrigðisþjónustunnar. Lögð verði áhersla á að skilgreina ábyrgð, verksvið og afköst helstu starfsstétta. Setja þurfi reglur um aukastörf heilbrigðisstarfsmanna þannig að þau virki ekki hindrandi á aðalstarf, séu ekki skaðleg trúverðugleika starfsmanns eða í samkeppni við aðalvinnuveitanda.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira