Eftirför á Reykjanesbraut og unglingaslagsmál á Stórhöfða Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 8. október 2016 10:07 Mikið var um ölvun í nótt ef marka má skeyti lögreglu. Vísir/Pjetur
Lögregla stöðvaði hópslagsmál á Stórhöfða í Reykjavík skömmu fyrir klukkan tvö í nótt. Alls tóku ellefu þátt í áflogunum, öll undir aldri, og voru foreldrar látnir sækja börn sín á lögreglustöðina. Í skeyti lögreglu kemur fram að engan hafi sakað alvarlega, nokkrir hafi verið með minniháttar skrámur. Þá hafi enginn verið handtekinn vegna málsins. Rétt fyrir klukkan fjögur í nótt veitti lögregla ökumanni eftirför á Reykjanesbraut eftir að leigubílstjóri hafði tilkynnt um rásandi aksturslag bíls á Miklubraut. Ökumaður jók hraðann þegar honum var gefið merki um að stöðva og voru nokkrir lögreglubílar kallaðir út til að veita honum eftirför. Lögreglubílnum var að lokum ekið á bíl mannsins eftir að hann gerði sig líklegan til að keyra á móti umferð á Reykjanesbraut sunnan Arnarnesvegar. Ökumaðurinn var handtekinn. Þá óskuðu dyraverðir á skemmtistað í miðbænum eftir aðstoð lögreglu um klukkan hálf tvö í nótt vegna manns sem hafði verið ógnandi við dyraverði og ítrekað ráðist á útidyr staðarins. Maðurinn brást illa við þegar lögregla reyndi að ræða við viðkomandi. Vinur mannsins kom einnig og reyndi að hindra störf lögreglu, og í skeytinu segir að mennirnir tveir hafi verið mjög æstir og illir í framkomu og því fluttir á lögreglustöðina við Hverfisgötu.
Mest lesið Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Innlent „Planið“ sé byrjað að virka Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Sjálfstæðisflokkur á flugi og ríkisstjórnin aldrei mælst með minna fylgi Innlent Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Innlent Fleiri fréttir Rafmagn er farið af í miðbæ Reykjavíkur Vilja að konur uppgötvi sinn æðsta tilgang: að verða mæður Facebook og Instagram liggi niðri vegna bilunar Allir umsækjendurnir metnir jafn hæfir Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ „Við erum eitt þeirra landa sem skilja fiskveiðarnar einna best“ Harpa verður fulltrúi Íslands á heimsmeistaramóti nuddara Sjálfstæðisflokkur á flugi og ríkisstjórnin aldrei mælst með minna fylgi Tíðindi í glænýrri Maskínukönnun, Samhjálp og HM í nuddi Opna nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum í Reykjanesbæ Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Myndir úr Hvalfirði: Langreyðar dregnar á land „Planið“ sé byrjað að virka Gjörbreytt staða ef Íslendingar ganga inn í ESB Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ „Úr penna þeirra manna streymir gamalt fullyrðingarusl“ Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Fjöldi tilvika af glæfralegum framúrakstri áhyggjuefni „Dýravernd er ekki öfgaskoðun“ Hvalirnir skornir og lögreglan með áhyggjur af hraðakstri Segir milljarðahönnun skóla í Vogahverfi óraunhæfa Þrjú alvarleg ofbeldisbrot Hvetja stjórnvöld til að binda enda á „villimannslegar“ hvalveiðar Rabarbari hafinn til vegs og virðingar á Blönduósi Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Langreyðarnar komnar á land Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Sjá meira