Engin þjóð eins langt komin í meðferð á lifrarbólgu C Ásgeir Erlendsson skrifar 8. október 2016 19:30
Engin þjóð er eins langt á veg komin að meðhöndla sjúklinga með lifrarbólgu C og Ísland en meðferð á 360 manns sem hófst fyrr á þessu ári gengur vel. Sérfræðingur í lifrarlækningum talar um byltingu fyrir þennan sjúklingahóp og vonast er til að sjúkdómnum verði útrýmt hér á landi á næstu árum. Í febrúar tóku heilbrigðisyfirvöld, Landspítali og sjúkrahúsið Vogur höndum saman í samvinnu við lyfjafyrirtækið Gilead og hófu verkefni sem miðar að því að veita sjúklingum með lifrarbólgu C meðferð. Talið er að 800-1000 manns séu smitaðir hér á landi en við upphaf átaksins hófu 360 sjúklingar meðferð.Sigurður Ólafsson, sérfræðingur í meltingar- og lifrarlækningum.Sigurður Ólafsson, sérfræðingur í meltingar- og lifrarlækningum, leiðir rannsóknina og hann segir árangur undanfarinna átta mánaða vera góðan og vonast eftir að hægt verði að útrýma sjúkdómnum á næstu árum. „Það er engin þjóð jafn langt á veg komin með að meðhöndla sinn sjúklingahóp eins og við hér á Íslandi. Það hefur gengið vel og engin meiriháttar vandamál komið upp á. Við höfum ekki nákvæmar tölur um hversu margir hafi læknast en það sem við höfum séð það sem af er, er í samræmi við væntingar.“ Segir Sigurður. Sigurður vonast til að allir þeir sem smitaðir eru af lifrarbólgu C taki þátt og gangist undir meðferð við sjúkdómnum. „Skilaboðin núna eru þau til allra þeirra sem eru með lifrarbólgu C og eru ekki komnir á lyfjameðferð, að leita til okkar. Það er mjög auðvelt að nálgast okkur. Við erum á Facebook og það er hægt að hafa samband við okkur í gjaldfrjálsan síma 800-1111," segir Sigurður.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Sjá meira