Stöð 2 fagnar þrítugsafmæli í dag Ásgeir Erlendsson skrifar 9. október 2016 19:30
Í dag eru þrjátíu ár síðan Stöð 2 hóf útsendingar. Hans Kristján Árnason, annar stofnandi stöðvarinnar, segist muna eftir fyrsta útsendingadeginum eins og hann hafi gerst í gær enda gekk hann ekki áfallalaust fyrir sig. Jón Óttar Ragnarsson og Hans Kristján Árnason voru búnir að ganga með hugmynd í maganum um einkarekna sjónvarpsstöð í rúm tvö ár þegar loksins kom að fyrsta útsendingardegi Stöðvar 2, þann 9. október 1986. „Ég man nánast allt þennan dag því þetta var svo stór dagur. Ávarp Jóns Óttars, hljóðlausa, með indverjan með túrbaninn skríðandi í gólfinu.“ Segir Hans Kristján. Jón Óttar flutti ávarp sitt á sama tíma og Reagan bandaríkjaforseti kom til landsins og fyrsti þátturinn á dagskrá Stöðvar 2 var grínþátturinn Spitting Image, þar sem grín var gert að forsetanum. „Við hlógum eins og asnar. Faðir minn hringdi í mig og spurði mig, ertu vitlaus? Hvernig dettur ykkur í hug að bjóða forseta Bandaríkjana velkominn með svona þætti?“ Hans Kristján heldur enn upp á fyrstu dagskrá stöðvarinnar sem hann vélritaði sjálfur. „Þetta voru skemmtilegustu ár ævi minnar.“ Á afmælisdeginum er Hans Kristján stoltur af afkvæminu. „Ég er mjög stoltur.“ Segir Hans Kristján Árnason.Sérstakur afmælisþáttur Stöðvar 2 í stjórn Loga Bergmann er á dagskrá klukkan 20:45 í kvöld, í opinni dagskrá. Gestir þáttarins eru allir tengdir Stöð 2 með einum eða öðrum hætti og má meðal annars nefna Pál Magnússon, Eddu Andrésdóttur, Helgu Brögu, Sigurjón Kjartansson, Pétur Jóhann, Sveppa, Steinda Jr., Auðunn Blöndal, Emmsjé Gauta, Eddu Björg, Örn Árnason, Gumma Ben, Sigrúnu Ósk, Lóu Pind, Kristján Má og marga fleiri.
Mest lesið Vilja að konur uppgötvi sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent Rafmagn er farið af í miðbæ Reykjavíkur Innlent Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Innlent Facebook og Instagram liggi niðri vegna bilunar Innlent „Við erum eitt þeirra landa sem skilja fiskveiðarnar einna best“ Innlent Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Fleiri fréttir Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Rafmagn er farið af í miðbæ Reykjavíkur Vilja að konur uppgötvi sinn æðsta tilgang: að verða mæður Facebook og Instagram liggi niðri vegna bilunar Allir umsækjendurnir metnir jafn hæfir Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ „Við erum eitt þeirra landa sem skilja fiskveiðarnar einna best“ Harpa verður fulltrúi Íslands á heimsmeistaramóti nuddara Sjálfstæðisflokkur á flugi og ríkisstjórnin aldrei mælst með minna fylgi Tíðindi í glænýrri Maskínukönnun, Samhjálp og HM í nuddi Opna nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum í Reykjanesbæ Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Myndir úr Hvalfirði: Langreyðar dregnar á land „Planið“ sé byrjað að virka Gjörbreytt staða ef Íslendingar ganga inn í ESB Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ „Úr penna þeirra manna streymir gamalt fullyrðingarusl“ Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Fjöldi tilvika af glæfralegum framúrakstri áhyggjuefni „Dýravernd er ekki öfgaskoðun“ Hvalirnir skornir og lögreglan með áhyggjur af hraðakstri Segir milljarðahönnun skóla í Vogahverfi óraunhæfa Þrjú alvarleg ofbeldisbrot Hvetja stjórnvöld til að binda enda á „villimannslegar“ hvalveiðar Rabarbari hafinn til vegs og virðingar á Blönduósi Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Langreyðarnar komnar á land Sjá meira
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent