Hafði endurtekið kynferðismök við fjórtán ára stúlku en þarf ekki að sitja inni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. september 2016 11:20 Samskipti stúlkunnar og mannsins fóru fram á Skype. Vísir/Valli
29 ára karlmaður var dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára stúlku. Karlmaðurinn játaði að hafa verið í samskiptum við stúlkuna með það fyrir augum að sofa hjá henni. Hann neitaði þó að hafa vitað hve ung hún var í fyrstu skiptin sem þau sváfu saman. Stúlkan og maðurinn tóku tal saman á einkamálasíðu og færðust samskiptin yfir á Skype. Stúlkan sagðist hafa sýnt manninum áhuga og hann henni sömuleiðis sem aðrir gerðu ekki. Hún hefði þó verið full efasemda um að hitta hann en eftir að hafa smakkað áfengi í fyrsta skipti hefðu þau hist og stundað kynferðismök í bíl hans.Sagðist ekki hafa kveikt á tölunni Samskipti stúlkunnar og mannsins voru í maí og júní 2013. Viðurkenndi maðurinn að hafa haft kynferðismök við stúlkuna fimm sinnum en stúlkan taldi það hafa verið nokkrum sinnum til viðbótar við það. Hann þvertók fyrir að hafa vitað aldur hennar fyrr en eftir að hafa sofið hjá henni tvisvar. Hann viðurkenndi þó að hafa gert það í þrígang eftir að hún sagði honum aldur sinn, fjórtán ár. Fæðingarár stúlkunnar kom fram í notendanafni stúlkunnar á Skype en maðurinn sagðist ekki hafa lagt neina merkingu í það enda væru alls konar tölur sem fólk notaði í notendanöfn. Á Facebook-síðu stúlkunnar stóð að hún væri nítján ára. Stúlkan sagðist hafa greint honum frá aldri sínum fyrir þeirra fyrsta hitting, hún mundi þó ekki hvenær, en maðurinn þvertók fyrir það. Það hefði ekki verið fyrr en eftir að þau hefðu hist tvisvar. Þá hefði hún sagst ekki vilja ljúga til um aldur sinn. Skype samskipti stúlkunnar og mannsins voru lögð fram en af þeim mátti ekki ráða að stúlkan hafi sagt manninum hve gömul hún væri. Hún gerði það hins vegar um miðjan júnímánuð. Dóminum þótt ekki óvarlegt að leggja til grundvallar í málinu að manninum hefði ekki verið ljós aldur stúlkunnar fyrr en eftir að þau höfðu hist tvisvar og stundað kynlíf. Ekki væri hægt að fullyrða að maðurinn hefði skilið töluna í notendanafni stúlkunnar á Skype sem fæðingarár hennar. 800 þúsund krónur í bætur Var það mat dómsins að framburður stúlkunnar að hún hefði sagt manninum að hún væri fjórtán ára áður en þau hittust í fyrsta sinn hafi ekki þá stoð í gögnum málsins að það nægi gegn eindreginni neitun ákærða. Var hann því sýknaður af þeirri háttsemi að hafa haft samræði og önnur kynferðismök við stúlkuna vitandi að hún væri fjórtán ára gömul. Hins vegar játaði hann að hafa haft samskipti við stúlkuna í gegnum Skype og síma til að hafa samræði við hana í að minnsta kosti þrjú skipti vitandi að hún væri fjórtán ára gömul. Var hann dæmdur fyrir brotið. Þá þarf hann að greiða henni 800 þúsund krónur í miskabætur en móðir stúlkunnar hafði farið fram á 2,5 milljónir króna í bætur fyrir hönd ófjárráða dóttur sinnar. Stúlkan gaf fyrst skýrslu í málinu í Barnahúsi í nóvember 2013. Ákærði var ekki yfirheyrður fyrr en í september 2014. Ákæra var gefin út í málinu í maí 2015 og dómur féll svo í vikunni. Þrjú ár eru því liðin frá því stúlkan leitaði til barnaverndaryfirvalda. Vegna þessara óútskýrðu tafa á málinu, eins og segir í dóminum, ákvað héraðsdómur að skilorðsbinda dóminn.Dóminn í heild má lesa hér.
Mest lesið Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Fleiri fréttir Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Sjá meira