Íbúi á Flateyri: Alvarlegt mál gagnvart hótelum, matvælavinnslu og sjúklingum Jóhann Óli Eiðsson skrifar 20. september 2016 07:00 Mengunin uppgötvaðist 31. ágúst en íbúar fengu ekki vitneskju um hana fyrr en um miðjan september. vísir/pjetur
Bæjaryfirvöld í Ísafjarðarbæ og Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða vissu af saurgerlum í neysluvatni Flateyrar í sextán daga án þess að íbúum væri gert viðvart. Fyrst var sagt frá málinu á vef Bæjarins besta. „Það er ljóst að Ísafjarðarbær hafði vitneskju um þetta og lét okkur ekki vita,“ segir Guðmundur Björgvinsson, íbúi á Flateyri. Hann hefur undanfarna daga verið í samskiptum við bæjarskrifstofu til að fá upplýsingar um málið. „Ég hef fengið svör með niðurstöðum úr sýnatökum síðustu ára en engin svör við því hvað fór úrskeiðis.“Gísli Halldór Halldórsson bæjarstóri Ísafjarðarbæjarmynd/benedikt hermannssonVið eftirlit kom í ljós að útfjólublá ljósapera, sem hefur það hlutverk að drepa slíka gerla, hafði bilað. Skipt var um peru fyrir helgi og ætti neysluvatnið nú að vera laust við gerla. Niðurstöður úr nýrri sýnatöku liggja fyrir í dag. „Þetta er auðvitað alvarlegt mál, sérstaklega gagnvart hótelum, matvælavinnslu og sjúklingum og fólki með veikt ónæmiskerfi,“ segir Guðmundur. Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða tók fyrra sýnið þann 31. ágúst síðastliðinn en það innihélt bæði kólí- og E.kólígerla. Þegar sýnið var tekið stóðu framkvæmdir yfir við vatnsveituna. Talið var líklegt að mengunina mætti rekja til þeirra, og að um tímabundið ástand hefði verið að ræða. Að sögn Antons Helgasonar, forstjóra Heilbrigðiseftirlitsins, var bæjaryfirvöldum gert viðvart. „Hinn 12. september tókum við annað sýni og þá úr íbúðarhúsi sem er tengt annarri lögn. Það reyndist líka innihalda saurgerla. Við gerðum bænum viðvart á ný en lengra ná okkar aðgerðir ekki,“ segir Anton. „Niðurstöður sýnatökunnar leiddu ekki til þeirra viðbragða og upplýsingagjafar sem nauðsynlegt er að viðhafa,“ segir Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Hann bætir því við að hann viti ekki hvar skilaboðin um mengunina strönduðu; hvort þau hafi ekki borist frá Heilbrigðiseftirlitinu eða týnst á bæjarskrifstofunni. „Það er til heilla að ekki var um að ræða verulega mengun að þessu sinni, en hins vegar er mjög alvarlegt að mælingar skyldu ekki leiða til tafarlausra aðgerða.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Saurgerlamengað neysluvatn: Bæjarstjórinn ekki hissa á að þetta komi illa við Flateyringa Bæjaryfirvöld höfðu vitneskju um að neysluvatn væri saurgerlamengað í 16 daga. 19. september 2016 20:30 Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira
Saurgerlamengað neysluvatn: Bæjarstjórinn ekki hissa á að þetta komi illa við Flateyringa Bæjaryfirvöld höfðu vitneskju um að neysluvatn væri saurgerlamengað í 16 daga. 19. september 2016 20:30