Mikill meirihluti studdi samkomulagið Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. september 2016 07:00 Elín Björg Jónsdóttir undirritaði samkomulagið fyrir hönd BSRB. Fréttablaðið/GVA „
Þarna var það einfaldlega þannig að það voru fjögur félög sem voru því mótfallin að við gerðum þetta og það var farið í atkvæðagreiðslu. Niðurstaðan varð að 22 aðildarfélög bandalagsins voru samþykk því að við myndum undirrita þetta skjal,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, um þá ákvörðun forystumanna BSRB að undirrita samkomulag við ríki og sveitarfélög um nýtt lífeyriskerfi. Með þessa niðurstöðu hafi henni einfaldlega borið að undirrita samkomulagið. Samningarnir voru undirritaðir í fyrradag. Breytingarnar fela í sér að allt launafólk í landinu mun njóta sambærilegra lífeyrisréttinda hvort sem það starfar á opinberum eða almennum vinnumarkaði. Í framhaldinu ætla ríki og sveitarfélög að leiðrétta launamun milli opinbera vinnumarkaðarins og hins almenna. Fréttablaðið greindi frá því í gær að fjögur aðildarfélög innan BSRB hefðu bókað mótmæli gegn fyrirhuguðum breytingum á lífeyrissjóðakerfinu á formannafundi sem haldinn var í Reykjanesbæ í byrjun september. Þetta voru forsvarsmenn Landssambands lögreglumanna, Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Sjúkraliðafélagsins og Tollvarðafélagsins. Elín Björg segir það afar leitt að ekki skyldu öll félögin innan BSRB hafa verið sammála í málinu því reynt hafi verið að ná samstöðu um það. En það er ekki bara deilt um nýja samkomulagið innan BSRB. Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem samkomulaginu var mótmælt. Þar er vinnubrögðum við gerð samkomulagsins líka mótmælt. „Um er að ræða breytingar sem eru gerðar án nokkurs samráðs við FÍH,“ segir í yfirlýsingunni. Telur stjórnin hjúkrunarfræðinga vera óbundna af samkomulaginu. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Sjá meira