Eðlilegt ef hægt væri að kaupa nýjar íbúðir Heiðar Lind Hansson skrifar 24. september 2016 07:00 Frá miðborg Reykjavíkur. Vísir/Andri Marinó „
Okkar skyldur eru gagnvart verst setta og tekjulægsta hópnum og við þurfum að eiga íbúðir fyrir þennan hóp. Það er númer eitt, tvö og þrjú en þessar tillögur eru alveg þess virði að skoða,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, um nýtt úrræði sem Kópavogsbær kynnti í fyrradag í félagslegu íbúðakerfi bæjarins. „Það þarf hins vegar að rýna vel í það hvort það sé yfirhöfuð skynsamlegt að lána fé til kaupanna úr borgarsjóði.“ Úrræði Kópavogsbæjar felst í því að bærinn býður leigjendum félagslegra íbúða sem eru komnir yfir viðmiðunartekjumörk að kaupa leiguíbúð sína, en hingað til hefur þurft að segja upp leigusamningi á slíkum tímamótum. Um leið býður bærinn þessum einstaklingum upp á 15% verðtryggt lán úr bæjarsjóði til að auðvelda fjármögnun íbúðarkaupanna. Á móti er gert ráð fyrir að kaupandinn taki 80% lán hjá fjármálastofnun og leggi fram 5% eigið fé. Bæjarsjóðslánið er verðtryggt og til 25 ára, en gert er ráð fyrir að það sé vaxta- og afborgunarlaust fyrstu 3-5 árin.Ilmur Kristjánsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Fréttablaðið/Stefán.Í vandræðum með að kaupa íbúðir„Þetta hefur verið rætt en við erum í vandræðum með að kaupa íbúðir,“ segir Ilmur um úrræðið. Hún bætir því við að það sé bagalegt að þurfa að segja upp leigusamningi við einstaklinga í félagslega kerfinu þegar hagur þeirra sé farinn að vænkast, en tekur þó fram að slíkt sé ekki algengt. Ilmur minnir á að ef opnað verði á þann möguleika að félagslegar íbúðir séu seldar með sama hætti og í Kópavogi þurfi Reykjavíkurborg engu að síður að eiga áfram íbúðir fyrir þá tekjulægstu. Þetta eigi sérstaklega við um litlar einstaklingsíbúðir. „Ef það væri hægt að kaupa fleiri íbúðir þá þætti mér þetta mjög eðlilegur framgangur, ekki síst ef aðstæður á húsnæðismarkaði breytast,“ segir hún og ítrekar að meta þurfi vel hvort ráðlegt sé að lána fé úr borgarsjóði vegna þessa. Nú þegar hefur einn einstaklingur keypt íbúð í Kópavogi í gegn um nýja úrræðið. Samkvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ hafa fleiri íbúar sýnt úrræðinu áhuga.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Sjá meira