Sport

Jón Margeir verður fánaberi Íslands í Ríó

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jón Margeir Sverrisson verður fánaberi í Ríó.
Jón Margeir Sverrisson verður fánaberi í Ríó. mynd/íf
Sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson verður fánaberi Íslands á setningarhátíð Ólympíumóts fatlaðra þegar hún fer fram 7. september.

Hátíðin verður haldin á hinum víðfræga Maracana-leikvangi þar sem brasilíska fótboltalandsliðið spilar alla sína stærstu leiki.

Mikið verður um dýrðir á setningarhátíðinni en hún fer fram á sjálfum þjóðhátíðardegi Brasilíumanna.

Jón Margeir er að keppa á sínu öðru Ólympíumóti en hann varð Ólympíumeistari í 200 metra skriðsundi í Lundúnum fyrir fjórum árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×