Sakaður um að hafa ítrekað kúgað konu sína til kynferðislegra athafna sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 8. september 2016 13:32 Maðurinn er ákærður fyrir fjölmörg brot gagnvart eiginkonu sinni og tveimur stjúpdætrum. vísir/getty
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni sem grunaður er um fjölmörg brot gagnvart eiginkonu sinni og tveimur stjúpdætrum síðastliðin sex ár. Hann er ákærður fyrir ítrekuð kynferðisbrot, stórfelldar ærumeiðingar, brot á nálgunarbanni og hótanir.Þvingaði konuna til að fróa sér nokkrum sinnum í viku Maðurinn er sagður hafa ítrekað, eða allt að nokkrum sinnum í viku, þvingað konuna til þess að fróa honum, með hótunum og annars konar ólögmætri nauðung. Hótanirnar sneru meðal annars að dætrum konunnar, og er hann sagður hafa hótað því að stunda kynlíf með þeim, eða henda þeim út af heimilinu, ef hún sinnti honum ekki kynferðislega. Þá hafi hann haft uppi sömu hótanir þegar hann þvingaði konuna til þess að setjast klofvega ofan á sig og hafa samræði við sig. Maðurinn er einnig sakaður um að hafa beitt stjúpdætur sínar kynferðislegri áreitni, meðal annars með því að senda þeim fjölmörg smáskilaboð þar sem hann viðhafði kynferðislegt og klámfengið orðbragð. Mörg skilaboðanna innihéldu jafnframt hótanir um kynferðisbrot sem voru til þess fallnar að vekja ótta um líf, heilbrigði og velferð, að því er segir í ákærunni. Aldur stúlknanna er ekki tiltekinn í ákærunni.Braut ítrekað nálgunarbann Maðurinn var úrskurðaður í nálgunarbann í Héraðsdómi Reykjavíkur 7. mars síðastliðinn, sem í kjölfarið var staðfest af Hæstarétti. Hann braut hins vegar nálgunarbannið samdægurs með því að setja sig í samband við mæðgurnar og með því að fara inn í anddyrið á stigagangi þeirra. Í ákærunni segir að maðurinn hafi hringt 566 sinnum í heimasíma konunnar á tímabilinu 7. mars til 22. mars. Þá hafi hann sent stjúpdætrum sínum á tímabilinu 7. mars til 1. júní samtals 636 smáskilaboð. Mæðgurnar fara fram á alls átta milljónir króna í bætur. Þá fer héraðssaksóknari fram á að maðurinn verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Tengdar fréttir Hótaði að drepa stjúpdætur sínar og rauf nálgunarbann Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir ítrekuð brot gegn eiginkonu sinni og stjúpdætrum sínum. 7. júní 2016 21:16 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Sjá meira
Hótaði að drepa stjúpdætur sínar og rauf nálgunarbann Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir ítrekuð brot gegn eiginkonu sinni og stjúpdætrum sínum. 7. júní 2016 21:16