Innlent

Var látinn þegar bifreiðin fannst

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Maðurinn sem lést var á sextugsaldri.
Maðurinn sem lést var á sextugsaldri. Vísir
Ökumaður bifreiðarinnar, karlmaður á sextugsaldri, sem fór í höfnina á Hvammstanga fyrr í dag var látinn þegar bifreiðin fannst. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi vestra.

Tilkynning um atvikið barst á fimmta tímanum í dag og var strax kallað á tiltæka viðbragðsaðila á svæðinu. Kafari frá Brunavörnum Húnaþings vestra fann bifreiðina skömmu fyrir klukkan fimm á hafsbotni um þrjátíu metra frá bryggjunni. Enn fremur aðstoðuðu kafarar frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en þeir voru fluttir á staðinn með þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Lögreglan á Norðurlandi vestra annast rannsókn málsins.


Tengdar fréttir

Bifreið fór í höfnina á Hvammstanga

Björgunarsveitarmenn úr björgunarsveitinni Húnum eru á staðnum auk lögreglumanna frá Blönduósi og þyrlu Landhelgisgæslunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×