Öðruvísi þróun en fyrir hrun Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 25. ágúst 2016 13:45 „
Fasteignaverð í sumar, sérstaklega síðustu tvo mánuði, hefur hækkað sérstaklega mikið,“ segir Ari Skúlason, hagfræðingur hjá hagfræðideild Landsbankans. Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað mikið á síðustu mánuðum eða um 2,2% bæði í júní og júlí. Hækkun undanfarna tólf mánuði nam 12,4% í lok júlí. Þessar tölur koma fram í Hagsjá Landsbankans sem gefin var út í morgun. Hækkun fasteignaverðs frá áramótum er 8,3 prósent en á árinu hafði Hagfræðideildin spáð níu prósenta hækkun og því sé ljóst að hún verði nokkuð meiri. „Það vakna alltaf upp spurningar við svona aðstæður hvort þetta stefni allt í ógöngur,“ segir Ari. „En ef maður ber þróunina til dæmis saman við árin fyrir hrun þá er verulega mikill munur þar á og skýringin felst einkum í því að fasteignaverðið fylgir miklu betur öðrum stærðum til dæmis þróun kaupmáttar. Á árunum fyrir hrun rauk fasteignaverðið upp úr öllu valdi án þess að vera í tengslum við nokkurn skapaðan hlut og þá má segja að þar sé bólumyndun. Nú er þetta miklu minna og vægara en á árunum fyrir hrun, um 2004 til 2006.“En hvernig mætti varast bólumyndun í framtíðinni? „Það sem ræður þessu að mestu eru markaðslögmálin. Það sem dregur fasteignaverðið upp á við er fyrst og fremst að það er miklu meiri eftirspurn en framboð og leiðin til að laga það er mað framboði á nýju húsnæði fyrst og fremst með nýbyggingum,“ segir hann.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira