Ragnheiður Elín segir Dag önugan og ómálefnalegan popúlista Jakob Bjarnar skrifar 25. júlí 2016 12:17 Ragnheiður Elín: Beinlínis hallærislegt af borgarstjóra í pólitískum popúlisma að reyna að stilla okkur upp sem andstæðingum í þessu samhengi. visir/anton
Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála, vill ekki láta Dag B. Eggertsdóttir eiga neitt inni hjá sér; segir hann önugan og ómálefnalegan. En, henni „skilst að [Dagur] hafi verið að hnýta í mig á facebook síðu sinni fyrr í morgun.“Vísir greindi frá reiðilestri Dags nú fyrir stundu, sem segir að sveitarstjórnarfólk sé komið með algerlega kappnóg af dáðlausum og aðgerðarlausum ráðherra; þá sé litið til ferðamála og hvernig beri að fjármagna bráðnauðsynlega uppbyggingu innviða þar. Og nú ganga skeytin á milli ráðamannanna. „Það hefur áður komið fram að ég og borgarstjóri erum ekki sammála um að gistináttagjaldið sé sá gjaldstofn sem færa eigi yfir til sveitarfélaganna til þess að tryggja þeim meiri hlutdeild í tekjum af ferðamönnum sem hingað til landsins koma,“ skrifar Ragnheiður Elín á sína Facebooksíðu. Hún segir að þetta myndi skila sér með ójöfnum hætti til sveitarfélaganna vítt og breitt um landið og hvergi í samhengi við þann kostnað sem sveitarfélögin ... „- sérstaklega þau fámennustu úti á landi - hafa af þjónustu og innviðauppbyggingu vegna ferðaþjónustunnar. Í öðru lagi gefur gistináttagjaldið ekkert sérstaklega vel af sér, ef svo mætti til orða komast, sérstaklega þegar haft er í huga hversu mikið ómak er af innheimtu þess, fjölda innheimtuaðila, margar undanþágur og litlar heimtur. Þetta ræddi ég allt í viðtalinu sem Dagur vísar til.“ Pistill Ragnheiðar Elínar er alllangur en hún lýkur honum á að segja að það sé „beinlínis hallærislegt af borgarstjóra í pólitískum popúlisma að reyna að stilla okkur upp sem andstæðingum í þessu samhengi. Það er þvert á það sem við erum alls staðar annars staðar að gera í þessum málaflokki - við erum að vinna þvert á stjórnsýsluna, með sveitarfélögunum og greininni sjálfri að því að stilla saman strengi, vinna saman og þannig ná betri árangri. Af hverju kemur borgarstjóri ekki bara frekar með okkur í það verkefni?“ Ragnheiður Elín vill að endingu hvetja Dag til að hlusta á viðtalið sem hann vísar til - ef hann hefði gert það hefði ég losnað við að skrifa þennan langa status.“
Tengdar fréttir Dagur segir Ragnheiði Elínu aðgerðarlausa með öllu Borgarstjóri Reykjavíkurborgar hundskammar ráðherra ferðamála. 25. júlí 2016 11:27 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira
Dagur segir Ragnheiði Elínu aðgerðarlausa með öllu Borgarstjóri Reykjavíkurborgar hundskammar ráðherra ferðamála. 25. júlí 2016 11:27