Dagur segir Ragnheiði Elínu aðgerðarlausa með öllu Jakob Bjarnar skrifar 25. júlí 2016 11:27 Dagur segir að sveitarstjórnarfólk sé komið með algerlega uppí kok, vegna dáðleysis ráðherra ferðamála.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, segir staðhæfingar Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, ráðherra ferðamála furðulegar. Ummælin sem Dagur vísar til eru þær að ráðherra segist ekki vilja sérstakar tekjuleiðir í tengslum við ferðamennskuna til viðbótar þeim sem nú eru, svo sem í gegnum virðisaukaskattkerfið. Þetta sagði Ragnheiður Elín í viðtali á Þjóðbraut Hringbrautar, þar sem hún gerði lítið úr öðrum tekjumöguleikum og sagði það „bara baunir“. Þetta mega heita óvæntar yfirlýsingar í ljósi þess að eitt helsta mál hennar var Náttúrupassinn svonefndi, sem reyndar komst aldrei á koppinn. „Þetta er með furðulegri staðhæfingum sem ég hef lesið í seinni tíð. Ráðherra ferðamála virðist ekki nenna að reka af sér slyðruorðið og tryggja að sveitarfélög fái hlutdeild í tekjum af ferðafólki - því það snúist einungis um milljarð á ári!“ Borgarstjóri hellir sér yfir ráðherra á Facebooksíðu sinni, hann telur Ragnheiði Elínu dáðlausa og að verulega sé farið að síga í sveitarstjóranarfólk: „Já, ráðherrann kallar þann miljarð sem sveitarfélögin hafa verið að kalla eftir til að mæta kostnaði vegna ferðamanna „bara baunir“. Er þarna loks komin ástæðan fyrir algeru aðgerða- og áhugaleysi ráðherra við að koma til móts við þá eðlilegu kröfu að gistináttagjald renni til sveitarfélaga? Það taki því ekki,“ segir Dagur og hann heldur áfram, forviða: „Fyrir milljarð á ári mætti engu að síður gera gangskör í uppbyggingu innviða, einsog salerna, umhirðu og viðhaldi, einsog hreinsun og malbiksframkvæmdir, þar sem þörfin er brýn víða um land vegna aukins álags og straums ferðamanna. Það er ekki undarlegt að farið sé að þykkna í sveitarstjórnarfólki. Og ráðherra gerir illt verra og hælist um og segir allar kistur séu fullar af gulli hjá ríkinu. Það er í það minnsta ljóst að Ragnheiður Elín ætlar að klára ráðherratíð sína án þess að gera neitt í þessu. Afrakstur heils kjörtímabils: Innviðina vantar víða, aðgerðarleysið er algert og stuðningur við sveitarfélög í þessum mikilvægu verkefnum enginn.“
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heimatilbúinn Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Sjá meira