Fjármálaráðherra segir kosið í haust: "Þetta stjórnarsamstarf var endurnýjað á þessum forsendum og það hafa engar forsendur breyst“ Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 28. júlí 2016 11:49 „
Þegar við endurnýjuðum samstarfsflokkana í vor þá voru breytingar í ríkisstjórninni. Við boðuðum á sama tíma að við ætlum að ljúka ákveðnum verkefnum og myndum síðan ganga til kosninga.“ Þetta sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í samtali við fréttastofu þegar hann kom til Bessastaða á ríkisráðsfund í morgun. Jafnframt segir fjármálaráðherra að ekkert virðist vera því til fyrirstöðu að hægt sé að kjósa seint í október, líkt og nefnt hefur verið. Aðspurður hvort nýleg ummæli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar séu á skjön við það sem stjórnarþingmenn hafa sagt síðustu mánuði segir ráðherrann það skipta máli að ekki sé mikill hringlandaháttur með þessa hluti. „Ég hef lagt á það áherslu að við stöndum við það sem að sagt hefur verið um þessi efni en á sama tíma að það sé starfsfriður á Alþingi, að við náum að ljúka mikilvægum verkefnum. Það gekk vel í vor, eins og forsætisráðherra hefur bent á var þingið starfsamt eftir að við komumst að þessari niðurstöðu. En nú erum við að hefja þingstörf aftur um miðjan ágúst og það er mjög mikið undir að það verði framgangur í þingstörfunum á þeim dögum sem að þá ganga í garð,“ sagði fjármálaráðherra.Góður tími til að ganga til kosningaBjarni sagði jafnframt að ummæli Sigmundar komi sér í sjálfu sér ekki á óvart. „Það má alveg segja að það séu gild rök fyrir því að ríkisstjórnir eigi að starfa út kjörtímabilið. En það komu upp aðstæður og við brugðumst við þeim með þessum hætti og það hefur ekkert breyst í neinum forsendum hvað það snertir.“ Hann bendir jafnframt á að svipaðar aðstæður hafi komið upp árið 2009 og þá hafi þingmenn Sjálfstæðisflokksins stutt þá ákvörðun að gengið væri til kosninga. Samkvæmt ráðherranum hefur gengið vel á þessu tímabili að fylgja málum ríkisstjórnarinnar eftir. „Betur en maður þorði að vona í raun og veru.“ Þá segir hann að tími sé kominn að líta upp og gera áætlanir til lengri tíma. „Og það er agætis tímapunktur, þegar þessi staða er komin upp, til þess að ganga til fundar við kjósendur og endurnýja umboð til þingsins.“
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fleiri fréttir Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Sjá meira