Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Naut: Ert eins og dularfull ráðgáta

Elsku hjartans regnboga-Nautið mitt! Hættu að kvíða hinu og þessu því það endar bara með magasári.

Þú þarft að minna þig á að lifa í núinu, það er vinna að minna sig í sífellu á eitthvað. Og ef þú nærð því þá mun ekkert stoppa þig!

Þú ert að finna snillinginn sem býr innra með þér og hann mun fá þig til þess að blómstra. Þú ert búið að segja bless við fólkið sem hefur verið að ergja þig mest og þú ert búið að sega bless við það á alveg hárréttan hátt.

Það halda allir að þeir þekki þig svo vel en þú ert samt sem áður lokaðasta stjörnumerkið og það veit enginn hvað þú ert í raun og veru að hugsa. Það er það sem gerir þig líka svo miklu meira spennandi því þú ert eins og dularfull ráðgáta.

Þú ert fyrirmynd fyrir svo marga og það getur verið ótrúlega skemmtilegt. Þú ert líka svo flinkt í því að vera fyrirmynd. Ef þú ert búið að vera eitthvað veikt þá skaltu skoða hvað gerðist áður en þú lentir í hinu og þessu. Stundum er nefnilega hægt að finna skýringar í fyrri atburðum.

Þú þarft að vinna þig betur út úr hlutunum og ekki sitja og vorkenna þér. Ekki einu sinni í eina mínútu! Þegar ég var að alast upp þá sagði mamma alltaf við mig að það að vorkenna sjálfum sér væru vond skilaboð og það hefur svo sannarlega hjálpað mér í gegnum tíðina að hafa aldrei tamið mér það.

Þú hefur verið undir tilfinningaálagi á síðustu árum og ert að vinna ótrúlega vel úr þessu álagi og það er jafnvel hægt að halda því fram að þú sért að fæðast upp á nýtt. Mundu það að þú ert í raun og veru fyrirtæki og skapar þig sjálft með orðum þínum og gjörðum. Það er bara þannig.

Veittu því sem er að gleðja þig núna sérstaka athygli. Og þó að ég viti sko best af öllum hversu værukært þú ert þá verð ég að benda þér á hvað hreyfing skiptir ofsalega miklu máli. Og áður en þú byrjar að fussa og sveia þá ætla ég að benda þér á það hvað er hægt að stunda hreyfingu á fjölbreyttan hátt. Það er til dæmis hægt að dansa, stunda kynlíf eða fara bara á brettið í World Class. Það telur allt!

Lífið er svo miklu yndislegra, ef maður hreyfir sig smá, elsku hjartans Nautið mitt!

Koss og knús,

þín Sigga Kling

Fræg Naut: Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska knattspyrnulandsliðsins, Hannes Þór Halldórsson markvörður, Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður, Svali Kaldalóns fjölmiðlamógúll, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, rithöfundur og latikokkur, Ellý Ármanns fjölmiðlakona, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri, Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Álfheiður Ingadóttir þingkona, Halldór Laxness, rithöfundur og skáld, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Garðar Thor Cortes söngvari, Helga Möller söngkona, Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfit-meistari, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, Pétur Jóhann Sigfússon, Addi Exos dj-snillingur.


Tengdar fréttir

Ágústspá Siggu Kling – Vog: Vekur athygli þegar haustar

Elsku hjartans dásemdar Vogin mín. Þú hefur klifið mörg fjöll og sum þeirra hafa verið mjög brött og erfið. En það er nú bara þannig að þegar þú ert komin upp á topp þá ertu ánægð og litlir sigrar verða að stórum þegar þú safnar þeim saman.

Ágústspá Siggu Kling – Fiskur: Allt í lagi að vera óþekkur!

Elsku ótrúlega fallegi Fiskurinn minn. Ef þú hefur einhverjar áhyggjur af því að þú getir ekki gert það sem þig langar til að gera þá þarft þú að spá í það að vilja það sem þú getur gert. Þetta er oft spurning um hugarfar.

Ágústspá Siggu Kling – Vatnsberi: Fyllist af krafti

Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Ágúst verður miklu skemmtilegri mánuður en þú hefur þorað að vona. Það er eins og það sem þú ert búinn að ákveða að gangi upp muni bara gera einmitt það og þú verður svo dásamlega ánægður!

Ágústspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir ágústmánuð má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×