Mörg rannsóknaskip í Reykjavíkurhöfn Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 29. júlí 2016 06:00 Rannsóknaskipum hér við land hefur fjölgað verulega síðustu ár. Um 40 til 50 skip hafa komið á hverju ári undanfarið. vísir/hanna
Nokkur fjöldi stórra, erlendra rannsóknaskipa kemur við í Reykjavíkurhöfn þessa dagana. Bandarísku skipin Neil Armstrong og Ocean Victory voru við Granda í gær. Þá voru spænska rannsóknaskipið Sarmiento de Gamboa og hið þýska Maria S. Merian einnig í höfn. Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir skipin fleiri nú en gengur og gerist. Um fjögur til fimm skip hafi verið hér síðustu daga, það sé mjög óvenjulegt. „Síðustu ár hefur rannsóknaskipum verið að fjölga. Þetta hafa verið um fjörutíu skip á ári sem koma hingað,“ segir Gísli. Hann segir sérstaklega óvenjulegt að svo mörg séu hér á sama tíma og segir flest skipin stoppa hér fyrir þjónustu, meðal annars til að fylla á tankinn. „Reykjavík er mjög góð höfn að því leyti að öll þjónusta sem þarf er fyrir hendi,“ segir Gísli. „Neil Armstrong er nýtt rannsóknaskip Bandaríkjamanna og hefur heimahöfn í Woods Hole og er mikið notað af Hafrannsóknastofnuninni í Woods Hole, sem er á austurströnd Bandaríkjanna,“ segir Héðinn Valdimarsson hjá Hafrannsóknastofnun. Héðinn segir skipið vera í Reykjavík til þess að taka um borð bæði vísindamenn og rannsóknatæki, „sem halda munu í sjórannsóknir og straummælingar suður af Grænlandi,“ segir Héðinn, en olíubíll var að dæla á skipið þegar Fréttablaðið átti leið hjá. „Nýlega var hér í höfn Discovery frá Southampton-hafrannsóknastofnuninni, sem verður líklega á Reykjaneshrygg, en bæði þessi skip [Discovery og Neil Armstrong] verða á næstunni að vinna að rannsóknaverkefni sem nefnt er OSNAP,“ segir Héðinn. Hann segir verkefnið, OSNAP, snúast um rannsóknir á lóðréttri straumhringrás í Norðvestur-Atlantshafi, bæði á miklu dýpi og nærri yfirborðinu. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir að algengt sé að rannsóknaskip komi við hér á landi á leið sinni norður fyrir Ísland, meðal annars til Grænlands. „Rannsóknaskip koma gjarnan við hérna á leið norður eða til Grænlands. Það sem ég veit er að það stendur til stórleiðangur hjá Norðmönnum hingað norðan við okkur,“ segir Sigurður. Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli Sjá meira