Sextíu og fjórir bílar teknir í eftirlit Nadine Guðrún Yaghi skrifar 29. júlí 2016 07:00 Einn ökumaður var með útrunnið ökuskírteini en Ríkisskattstjóri hafði afskipti af þó nokkrum aðilum. vísir/gva
Afskipti voru höfð af 64 leigubílum og hópferðabílum í eftirliti í Sundahöfn í Reykjavík í síðustu viku. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi eftirlitið samvinnu við Ríkisskattstjóra. „Þarna koma skemmtiferðaskip og er töluvert af bílum sem taka á móti gestunum. Afskipti voru höfð af bílstjórum bílanna þar sem þeir voru kyrrstæðir á bílastæðunum hjá Sundahöfn,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Guðbrandur segir að lögregla hafi kannað ökuréttindi ökumanna og skráningu ökutækja og hópbifreiða. Einn ökumaður hafi verið með útrunnið ökuskírteini en að öðru leyti hafi meira og minna allt verið í lagi sem snýr að lögregluafskiptum. Steinþór Haraldsson, starfandi ríkisskattstjóri, segir að eftirlit Ríkisskattstjóra hafi beint athugasemdum til þó nokkurra aðila. „Við könnum hvort viðkomandi sé á skrá hjá okkur yfir atvinnurekendur og standi í skilum á staðgreiðslu- og virðisaukaskatti. Eins könnum við hvort starfsmenn séu á launaskrá. Það voru þó nokkrir sem þurftu að laga sín mál,“ segir Steinþór og bætir við að menn fái tíma til að bæta úr sínum málum. Um ræði viðvarandi eftirlit á vegum Ríkisskattstjóra. „Þetta eru fyrst og fremst fyrirbyggjandi aðgerðir,“ segir Steinþór.Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri fréttir Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Sjá meira