Njarðvíkurkonur upp í Dominos-deildina í miðjum júní Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júní 2016 15:40 Njarðvíkurliðið varð Íslandsmeistari og bikarmeistari fyrir fjórum árum en hefur nú endurheimt sæti sitt meðal þeirra bestu. Vísir/Daníel
Njarðvík verður með tvö lið í Domino´s deildinni í körfubolta næsta vetur því KKÍ hefur tekið kvennalið félagsins upp í efstu deild. Það eru ekki mörg körfuboltalið sem hafa unnið sér sæti í efstu deild í júní en svo varð raunin fyrir stelpurnar úr Ljónagryfjunni. Hamar skráði ekki lið sitt til leiks næsta vetur og því var eitt laust sæti í deildinni. Hamarsliðið var búið að missa marga lykilmenn undanfarin ár og sú þróun hélt áfram í vor. KR tapaði í lokaúrslitum 1. deildar kvenna síðasta vetur og hefði átt að vera næsta lið inn. Á heimasíðu KKÍ kemur fram að mótanefnd KKÍ hafi leitað til Njarðvíkur og að félagið hafi þegið sætið. Domino´s deild kvenna verður því skipuð átta liðum næsta vetur eins og reglugerð segir til um. Njarðvíkurkonur urðu í 3. sæti í 1. deildinni síðasta vetur eftir 12 sigra í 20 leikjum. Liðið vann hinsvegar 8 af 9 leikjum sínum með Carmen Tyson-Thomas innanborðs en sá öflugi leikmaður skoraði 36,1 stig og tók 17,8 fráköst að meðaltali í leik. Njarðvík varð tvöfaldur meistari 2012 en féll úr Dominos-deildinni tveimur árum síðar. Liðið hefur verið í 1. deild undanfarin tvö tímabil. Liðin í Domnio´s deild kvenna 2016-17 verða því: Snæfell, Haukar, Keflavík, Valur, Grindavík, Stjarnan, Skallagrímur og Njarðvík.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira