Hátæknisetur opnar í Vatnsmýrinni Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 3. júní 2016 11:25 Framkvæmdir við byggingu hófust árið 2013 Mynd/Ari Magg
Nýtt hátæknisetur systurfyrirtækjanna Alvogen og Alvotech opnar formlega í dag við hátíðlega athöfn. Framkvæmdir við byggingu hússins innan Vísindagarða Háskóla Íslands hófust í nóvember 2013 og er nú að ljúka. Innan setursins verður unnið að þróun og framleiðslu líftæknilyfja sem væntanleg eru á markað á næstu árum. Þau lyf sem nú eru í þróun eru háþróuð stungulyf sem meðal annars eru notuð við meðferð krabbameins- og gigtarsjúkdóma. Lyfjafyrirtækið Alvogen hóf starfsemi á Íslandi árið 2010 og nú starfa um 160 háskólamenntaðir sérfræðingar hjá systurfyrirtækjunum hér á landi. Heildarfjárfesting Alvotech á sviði líftæknilyfja verður um 500 milljónir evra, 75 milljarðar króna, á næstu árum, þar með talin fjárfesting á fullbúnu húsi sem er um 8 milljarðar króna, segir í tilkynningu frá Alvogen.Mynd/Ari MaggÞar kemur fram að sex líftæknilyf séu nú í þróun hjá Alvotech í samvinnu við erlenda samstarfsaðila. Fyrstu lyf fyrirtækisins eru væntanleg á markað árið 2019 þegar einkaleyfi renna út. Frumlyf þeirra lyfja sem fyrirtækið mun þróa og framleiða eru nú þegar á markaði og í hópi stærstu lyfja á heimsvísu. Áætlað söluverðmæti þeirra er um 15 milljarðar evra á ári. „Það er ánægjulegt að sjá þetta metnaðarfulla verkefni verða að veruleika. Það eru aðeins rúm tvö ár síðan við tókum skóflustungu að þessu glæsilega húsi sem nú verður tekið í notkun. Hátæknisetrið er búið fullkomnustu tækjum og öll starfsaðstaða fyrir vísindamenn fyrirtækisins er eins og best verður á kosið,“ er haft eftir Róberti Wessmann, stofnanda og forstjóra Alvogen. „Við sjáum mikil tækifæri í sölu líftæknilyfja á næstu árum og teljum að Alvotech og Ísland geti verið þar í lykilhlutverki. Við uppbyggingu á nýju alþjóðlegu lyfjafyrirtæki þarf að hafa skýra framtíðarsýn og hugrekki og það höfum við. Nú er mikilvægum áfanga náð og við munum halda áfram þróunarvinnu okkar og fylgja eftir metnaðarfullum áætlunum,“ segir Róbert.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Fleiri fréttir Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Sjá meira